„Byltingin er hafin!“ fær 12 milljón króna vilyrði frá KMÍ

Heimildamyndin Byltingin er hafin! í stjórn Hjálmtýs Heiðdal og Sigurðar Skúlasonar hefur fengið 12 milljón króna vilyrði frá Kvikmyndamiðstöð. Myndin segir frá því þegar ellefu íslenskir námsmenn fóru inn í íslenska sendiráðið í Stokkhólmi 20. apríl 1970, lýstu því yfir að sósíalísk bylting á Íslandi væri nauðsyn og drógu rauðan fána að húni.

Hjálmtýr og Sigurður skrifa einnig handrit myndarinnar ásamt Önnu K. Kristjánsdóttur, en öll þrjú komu að þessum hræringum á sínum tíma. Seylan framleiðir, en gert er ráð fyrir að myndin verði 55 mínútur að lengd. RÚV kemur einnig að fjármögnun myndarinnar.

Á vef Seylunnar segir um verkefnið:

Árið 1970, í kjölfar mikilla efnahagsþrenginga, voru mótmælaaðgerðir og pólitískt andóf fyrirferðarmikil í íslensku samfélagi. Tveir atburðir stóðu upp úr: sendiráðstakan í Stokkhólmi í apríl og sprenging stíflu í Laxá í ágúst. Þarna voru á ferð róttækir námsmenn annars vegar og róttækir bændur hins vegar. Á sama tíma gripu konur til róttækari baráttuaðferða fyrir réttindum sínum og Rauðsokkahreyfingin var stofnuð.

Í myndinni er fjallað um baráttu íslenskra námsmanna á sjöunda áratugnum fyrir bættum kjörum og betra lífi. Námsmönnum hafði fjölgað mjög og stór hluti þeirra sótti framhaldsnám við erlenda skóla. Námslán voru af skornum skammti og voru eingöngu ætluð til að duga fyrir 35% af framfærsluþörf námsmannanna. Afganginn þurftu þeir að sækja til foreldra og banka. En það áttu ekki allir efnaða foreldra eða höfðu aðgang að bankalánum. Baráttan fyrir betra lánakerfi var því jafnframt barátta fyrir jöfnuði til náms.

Hagsmunabarátta námsmanna hafði verið einskorðuð við eigin hagsmuni, en með vaxandi róttækni æskufólks teygði baráttan sig æ lengra yfir á önnur svið. Menn fóru að setja spurningarmerki við sjálfa þjóðfélags-gerðina og alþjóðamál urðu hluti af heimsmynd æskunnar á þessum tímum umróts og átaka.

Það var ekki síst stríðið í Víetnam og fjörbrot nýlendustefnunnar sem blésu í glæður mótmælanna. Vesturlönd urðu vettvangur baráttunnar sem var kennd við árið 1968. Fjöldi námsmanna taldi að það þyrfti að breyta samfélagsgerðinni og berjast gegn heimsvaldastefnu Vesturveldanna til þess að varanlegur árangur næðist í baráttunni fyrir bættum lífsgæðum.

Barátta íslenskra námsmanna tók á sig ýmsar myndir og náði hámarki í róttækustu aðgerð þeirra – sendiráðstökunni í Stokkhólmi þann 20. apríl 1970, þegar ellefu námsmenn fóru inn í íslenska sendiráðið og lýstu því yfir að sósíalísk bylting á Íslandi væri nauðsyn og drógu rauðan fána að húni.

Sjá nánar hér: Byltingin er hafin

Kynningarstiklu verkefnisins má sjá að neðan:

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR