„Kurteist fólk“ á DVD til styrktar börnum Stefáns Karls Stefánssonar og Steinunnar Ólínu

Poppoli Pictures, framleiðslufélag kvikmyndarinnar Kurteist fólk (2011) og dreifingaraðilinn Myndform, bjóða DVD eintök af myndinni til sölu til styrktar menntasjóði barna Stefáns Karls Stefánssonar og Steinunnar Ólínu. Stefán Karl fór með aðalhlutverkið í myndinni sem tekin var upp í Búðardal sumarið 2009 en Stefán hefur á undanförnum mánuðum barist hetjulega við krabbamein sem nú hefur tekið sig upp aftur.

Eintakið selst á 1.250 kr og áhugasamir geta verslað beint af skrifstofu Myndform, Trönuhrauni 1 í Hafnarfirði eða í miðasölu Bíó Paradís, Hverfisgötu 54, Reykjavík. Til að fá myndina senda utan höfuðborgarsvæðisins er hægt að senda pöntun í gegn um tölvupóst: kurteistfolk@myndform.is.

Allur ágóði rennur í menntasjóð barna Stefáns Karls og Steinunnar Ólínu.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR