„Ég man þig“ seld um allan heim

Úr Ég man þig.

Sölufyrirtækið TrustNordisk hefur tilkynnt um sölur á Ég man þig Óskars Þórs Axelssonar víða um heim í kjölfar Cannes hátíðarinnar. Myndin fer meðal annars til Norður-Ameríku (IFC Films), Frakklands (Swift), Japans (Gaga), Rómönsku Ameríku (California Filmes) og Víetnam (Green Media).

Susan Wendt, forstjóri Alþjóðlegrar sölu- og markaðsdeildar hjá TrustNordisk, segir:

„Sú staðreynd að Ég man þig hefur verið seld til landa í hverri einustu heimsálfu er skýr vottur um að myndin höfðar til fólks um allan heim og er afar vel gerð. Við erum viss um að áhorfendur eigi eftir að taka myndinni vel á ólíkum svæðum.”

Áður hefur myndin verið seld til STUDIOCANAL (Bretland og Írland), Telemünchen (þýskumælandi svæði), Euromedia (Tyrkland) og Vertigo (Ungverjaland).

Ég man þig er önnur kvikmynd Óskars Þórs Axelssonar í fullri lengd. Fyrsta mynd hans, glæpahrollvekjan Svartur á leik (2013) sló í gegn á alþjóðavísu og hlaut lof bæði frá gagnrýnendum og á kvikmyndahátíðum. Ég man þig byggir á metsölubók eftir íslenska glæpasagnahöfundinn Yrsu Sigurðardóttur og í aðalhlutverkum eru meðal annarra Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir og Jóhannes Haukur Jóhannesson.

Framleiðendur eru Sigurjón Sighvatsson, Þórir Snær Sigurjónsson, Skúli Malmquist og Chris Briggs hjá ZikZak í samvinnu við Ape & Björn Norway (Ruben Thirkildsen) and Maze Pictures í Þýskalandi með stuðningi frá Íslenskri kvikmyndamiðstöð og Norsku kvikmyndamiðstöðinni.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR