„Vargur“ Barkar Sigþórssonar kynnt í Cannes

Pólska leikkonan Anna Próchniak er burðardýr í Vargi Barkar Sigþórssonar.

RVK Studios kynnir Varg Barkar Sigþórssonar fyrir kaupendum á yfirstandandi Cannes hátíð. Myndin er í eftirvinnslu. Screen segir frá og birtir jafnframt fyrsta rammann úr myndinni.

Myndin segir frá tveimur bræðrum sem skipuleggja eiturlyfasmygl til Íslands og fá unga pólska stúlku til að gerast burðardýr.

Agnes Johansen og Baltasar Kormákur eru framleiðendur, Bergsteinn Björgúlfsson tekur og Elísabet Ronaldsdóttir klippir. Gert er ráð fyrir að myndin verði tilbúin í haust.

Gísli Örn Garðarsson og Baltasar Breki Samper fara með helstu hlutverk, en pólska leikkonan Anna Próchniak og hin danska Marijana Jankovic fara einnig með burðarrullur. Baltasar Kormákur og Ingvar E. Sigurðsson koma einnig fram í myndinni.

Breska sölufyrirtækið West End Films fer með sölu myndarinnar á alþjóðavísu.

Sjá nánar hér: First look at Baltasar Kormakur-produced thriller ‘Mules’ | News | Screen

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR