Þáttaröð um raðmorðingja í Reykjavík í undirbúningi

Þórður Pálsson leikstjóri og einn handritshöfunda The Vallhalla Murders.

Þáttaröðin The Valhalla Murders er nú í undirbúningi en stefnt er að sýningum veturinn 2018 á RÚV. Þættirnir fjalla um raðmorðingja í Reykjavík og tvinnast  einkalíf tveggja rannsóknarlögreglumanna sem stýra rannsókn málsins saman við. Vísir fjallar um málið og ræðir við leikstjóra og handritshöfund þáttanna, Þórð Pálsson.

Í frétt Vísis segir:

Leikstjóri og höfundur þáttanna The Valhalla Murders, Þórður Pálsson, var nýútskrifaður frá The National Film and Television School í Bretlandi þegar hugmyndin að sjónvarpsþáttunum kviknaði. Stuttu eftir að hann kynnti hugmyndina fyrir framleiðslufyrirtækinu True North var sett saman teymi sem vinnur að því að skrifa þættina. „Við erum að skrifa núna og erum komin frekar langt á leið með skrifin. Margrét Örnólfsdóttir yfirhandritshöfundur og Óttar M. Norðfjörð skipta með sér skrifunum. Kristinn Þórðarson og Davíð Óskar Ólafsson eru framleiðendur þáttanna. Teymið í kringum verkefnið gæti því eiginlega ekki verið betra frá mínu sjónarhorni séð,“ segir Þórður.

Spurður út í söguþráð þáttanna segir Þórður þá fjalla um tvö óvenjuleg morðmál. „Þættirnir fjalla um fyrsta íslenska raðmorðingjann. Það eru framin tvö morð á Íslandi á mjög stuttum tíma þar sem bæði fórnarlömbin eru myrt á sama hátt. Það eru þó engin tengsl á milli þeirra, sem gerir þetta enn þá erfiðara fyrir lögregluna því morð á Íslandi eru yfirleitt ástríðuglæpir. Lögreglan er því undir mikilli pressu og fá áhorfendur að fylgjast með rannsóknarlögreglumönnum reyna að leysa morðgátuna. Svo koma fjölmiðlar inn í þetta og þeir setja pressu á lögregluna og velta upp spurningunni hvort lögreglan á Íslandi geti höndlað svona stórt mál,“ segir Þórður.

Finnur fyrir áhuga fólks

Í þáttunum fá áhorfendur að fylgjast náið með tveimur rannsóknarlögreglumönnum við rannsókn málsins.  „Það eru þau Arnar og Kata. Arnar er sérfræðingur sem fenginn er að láni frá dönsku rannsóknarlögreglunni. Hann er Íslendingur sem hefur verið búsettur í Danmörku í 15 ár. Kata starfar fyrir íslensku lögregluna og sér um rannsókn málsins. Það myndast smá rígur á milli þeirra því Kata taldi sig vera fullfæra um að sjá um málið án utanaðkomandi hjálpar.

Við fylgjumst náið með þessum tveimur persónum við rannsókn málsins og um leið fáum við sýn inn í fortíð þeirra beggja. Það ríkir nefnilega ákveðin mystería í kringum þau. Arnar er til dæmis búinn að búa lengi í Danmörku og vill helst ekki koma aftur til Íslands, þá fer áhorfandinn vonandi að velta fyrir sér hver ástæðan fyrir því sé,“ segir Þórður sem finnur fyrir miklum áhuga hjá almenningi á þáttum sem fjalla um fyrsta raðmorðingja Íslands.

En hvenær líta þættirnir dagsins ljós? „Við erum að fara í tökur í vetur, og væntanlega verða þættirnir sýndir veturinn eftir það. Þessa stundina erum við að ráða inn leikara, við erum að fá fólk í prufur og ræða við hina og þessa. Það er allt í vinnslu eins og er, það er ekki búið að negla neitt niður.“

Sjá nánar hér: Þættir um raðmorðingja á Íslandi í bígerð – Visir

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR