„Out of Thin Air“, heimildamynd um Guðmundar- og Geirfinnsmálið, heimsfrumsýnd á Hot Docs hátíðinni

Þann 1. maí verður heimildamyndin Out of Thin Air um Guðmundar – og Geirfinnsmálin heimsfrumsýnd á stærstu heimildaþáttahátíð Kanada HotDocs.

Þrjár sýningar verða á myndinni í næstu viku en hún verður sýnd í flokknum World Showcase. Out of Thin Air verður í kjölfarið sýnd í Kanada á Northwestfest þar er hún tilnefnd til verðlauna sem besta heimildamyndin í fullri lengd.

Myndin er framleidd í samstarfi Sagafilm og Mosaic Films í London. Framleiðandi fyrir hönd Sagafilm er Margrét Jónasdóttir en framleiðandi Mosaic er Andy Glynne. Dylan Howitt er stjórnandi myndarinnar sem byggir að hluta til á gömlu myndefni frá áttunda áratugnum og nýjum leiknum atriðum sem leikstýrt var af Óskari Jónassyni. Tónlist gerði BAFTA verðlaunahafinn Ólafur Arnalds.

Myndin hefst á hinni dramatísku sögu af hvarfi Guðmundar Einarssonar og svo Geirfinns Einarssonar árið 1974. Síðan víkur sögu til þeirra sex ungmenna sem handtekin voru fyrir að hafa ráðið þeim bana. Byggt er á fyrstu handar frásögn þeirra sem upplifðu þessi mál.

Out of Thin Air lýsir því ástandi sem ríkti á Íslandi þessa tíma, þar á meðal óttanum sem greip þjóðina þegar talið var að skipulagðir glæpir væru að taka sér bólfestu á hinu saklausa Íslandi. Glæpastarfsemi sem talin var eiga rætur í undirheimum en tengjast upp eftir öllum samfélagsstiganum upp til ráðherra dómsmála. Fylgst er með ferli málanna á meðan á rannsókn stóð og hvernig þau þróuðust á meðan sakborningar sátu í gæsluvarðhaldi og lok þeirra þegar dómar féllu í héraði árið 1977 og loks í hæstarétti árið 1980. Sagan segir svo frá baráttu sakborninga, Sævars Marínó Cisielski og hinna fimm sakborninga og aðstandenda þeirra við að fá málið endurupptekið fyrir dómstólum.

Framleiðsla hófst í janúar 2016 og lauk í apríl 2017. Myndin er 90 mínútur að lengd og er framleidd fyrir BBC, RUV og Netflix. Hún er styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands, Atvinnu- og Nýsköpunaráðuneytinu auk Wellcome Trust í Bretlandi. Out of Thin Air er fjórða heimildamynd Sagafilm fyrir BBC Storyville og verður frumsýnd á Íslandi á haustdögum.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR