Aðsókn | „Grimmd“ nálgast tíu þúsund gesti eftir aðra sýningarhelgi

grimmd2Grimmd Antons Sigurðssonar er áfram í þriðja sæti aðsóknarlista FRÍSK eftir aðra sýningarhelgi og nálgast tíu þúsund gesta markið.

3,227 manns sáu myndina um helgina en alls 4,929 í vikunni. Heildargestafjöldi nemur því nú 9,230 gestum.

Eiðurinn Baltasars Kormáks er nú í tíunda sæti aðsóknarlistans. 273 manns sáu myndina um helgina en alls 939 manns yfir vikuna. Samtals hafa því 38,506 séð myndina.

Child Eater Erlings Óttars Thoroddsen var frumsýnd í Bíó Paradís um síðustu helgi. 129 manns sáu myndina um helgina en alls 289 að forsýningu meðtalinni.

Heimildamyndirnar Ransacked eftir Pétur Einarsson og Innsæi eftir Hrund Gunnsteinsdóttur og Kristinu Ólafsdóttur eru nú sýndar í Bíó Paradís. Alls hafa 528 séð þá fyrrnefndu eftir þrjár sýningarhelgar en 1,466 þá síðarnefndu, einnig eftir þrjár sýningarhelgar.

 

Aðsókn á íslenskar myndir 24.-30. október 2016

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
2Grimmd4,9299,230
8Eiðurinn93938,506
3Innsæi3121,466
Child Eater129289
3Ransacked125528
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR