Þórhallur Gunnarsson: Flöskuháls að myndast vegna ónógrar fjárfestingar

Þór­hall­ur Gunn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri sjón­varps- og kvik­mynda­fram­leiðslu Sagafilm segir mikinn áhuga fyrir inn­lendu leiknu efni hjá öll­um inn­lendu sjón­varps­stöðvun­um og að er­lend­ir aðilar sýni ís­lenskri fram­leiðslu stöðugt meiri áhuga. Þrátt fyr­ir það sit­ur Kvik­mynda­sjóður eft­ir og flösku­háls mynd­ast í ís­lensk­um kvik­myndaiðnaði. Stjórn­völd geta hjálpað til með því að auka fram­lög í ís­lenska kvik­mynda­gerð.

Þetta kemur fram á mbl.is og þar segir ennfremur:

„Fyr­ir hverja krónu sem ríkið legg­ur til kvik­mynda­gerðar fær það 2-3 til baka. Þetta er ekki ölmusa eða styrk­ur, þetta er fram­lag sem þú færð til baka, góð fjár­fest­ing,“ seg­ir Þór­hall­ur.

Hann seg­ir fjár­magnið alltaf helstu áskor­un­ina í fram­leiðslu­brans­an­um. „En þá er alltaf betra að vera með góð verk­efni því þá er fjár­mögn­un auðveld­ari. Það er þess virði að eyða orku í að vinna þetta vel en stóra áskor­un­in er og verður alltaf fjár­magn. Hér er verið að búa til sterk­an kvik­mynda­geira og byggja upp sterka innviði sem geta tek­ist á við þessi stóru verk­efni og gera þau vel á þeim mæli­kv­arða sem kraf­ist er er­lend­is.“

Þór­hall­ur seg­ir styrk frá Kvik­mynda­sjóði for­sendu þess að  fjár­magn fá­ist úr er­lend­um sjóðum, og þar með for­sendu fyr­ir því að hægt sé að fram­leiða efni á ís­lensku fyr­ir ís­lenska þjóð.

„Þannig laðar fjár­fest­ing í kvik­mynda­sjóð til sín er­lent fjár­magn sem aft­ur styrk­ir efna­hag­inn sem og at­vinnu­grein­ina í heild sinni. Við vilj­um segja ís­lensk­ar sög­ur sem end­ur­spegla um­hverfi okk­ar, sögu, og sam­fé­lag,“ seg­ir Þór­hall­ur.

Áhugi er­lend­is fyr­ir Stellu Blóm­kvist

Flest­ir þekkja fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Sagafilm sem hef­ur sér­hæft sig í fram­leiðslu sjón­varps­efn­is og kvik­mynda í næst­um því fjöru­tíu ár. Það er gríðarlega mikið í gangi hjá fyr­ir­tæk­inu og er það í takt við þá miklu grósku sem er nú í kvik­mynda- og sjón­varps­geir­an­um hér á landi. Fyr­ir­tækið fram­leiðir all­ar gerðir af sjón­varps­efni eins og raun­veru­leikaþætt­ina The Voice Ísland og Big­gest Loser, spennuþætti eins og Pressu og Rétt ásamt kvik­mynd­um og heim­ild­ar­mynd­um og fræðsluþátt­um og aug­lýs­ing­um. Eitt verk­efni sem var að klár­ast í upp­tök­um og Þór­hall­ur nefn­ir er tveggja þátta serí­an Líf eft­ir dauðann sem verður frum­sýnd á RÚV um pásk­ana. Serí­unni er leik­stýrt af Veru Sölva­dótt­ur sem skrifaði hand­ritið með Lindu Vil­hjálms­dótt­ur en Björn Jör­und­ur Friðbjörns­son leik­ur aðal­hlut­verkið.

Þá er fyr­ir­tækið einnig með sex þátta seríu í þróun sem mun heita Stella Blóm­kvist en stefnt er að því að byrja að skjóta hana í mars á næsta ári, eft­ir nokk­urra ára þróun. „Stella Blóm­kvist hef­ur þegar vakið mikla at­hygli er­lend­is sem er ánægju­legt. Við bind­um mikl­ar von­ir við hand­ritið sem er hörkugott,“ seg­ir Þór­hall­ur en Óskar Þór Ax­els­son mun leik­stýra Stellu Blóm­kvist. Þegar hef­ur verið samið við er­lenda og inn­lenda sam­starfsaðila varðandi fjár­mögn­un en serí­an verður að öll­um lík­ind­um sýnd í Sjón­varpi Sím­ans næsta haust.

Þetta eru aðeins tvö af þeim fjöl­mörg­um verk­efn­um sem eru á döf­inni hjá Sagafilm í leiknu efni og í sam­tali við mbl.is gat Þór­hall­ur nefnt sjö verk­efni með leiknu efni sem stefnt er á að kom­ist í fram­leiðslu á næsta ári og byrj­un 2018. Mörg þeirra hafa nú þegar fengið stuðning, bæði frá sjón­varps­stöðvum hér á landi en einnig er­lend­is frá.

Um er að ræða allskon­ar verk­efni, m.a. kvik­mynd fyr­ir alla fjöl­skyld­una, póli­tíska dramaseríu, dramaseríu sem ger­ist á ís­lensku sjúkra­húsi og heim­ild­ar­mynd um Guðmund­ar- og Geirfinns­málið en banda­ríska efn­isveit­an Net­flix er stærsti ein­staki fjár­mögn­un­araðili henn­ar.

„Hvað eruð þið með meira?

Þór­hall­ur bend­ir á að Sagafilm og kvik­myndaiðnaður­inn hér á landi al­mennt hafi nú ótrú­lega öfl­ug­an hóp af hand­rita­höf­und­um. „Í kvik­mynda­gerð á Íslandi hef­ur náðst að byggj­a upp sterk­ari og sterk­ari hóp sem hef­ur vinnu við það að skrifa hand­rit fyr­ir kvik­mynd­ir og sjón­varp,“ seg­ir Þór­hall­ur og bæt­ir við að það hafi ekki verið þannig fyr­ir nokkr­um árum. Við sjá­um líka góða nýliðun þar sem við fáum nýja efni­lega höf­unda sem bland­ast reynd­ari teym­um.  Það er ákaf­lega mik­il­vægt að halda áfram að styrkja þróun og hand­rita­skrif enn frek­ar þar sem sterk hand­rit eru und­ir­staðan af vönduðu verki. Þar höf­um við styrkt okk­ur mikið síðastliðin ár og vilj­um halda áfram að styrkja okk­ur enn frek­ar.“

Seg­ir Þór­hall­ur að það sé vegna þess sem fyr­ir­tæk­in fara út í verk­efni með meira sjálfs­traust. „Við vit­um að þau eru góð og við finn­um viðbrögðin hér heima og er­lend­is.“

Í þessu sam­hengi nefn­ir Þór­hall­ur að spennuserí­an Rétt­ur sem Sagafilm fram­leiddi á síðasta ári hafi ný­lega verið seld til Chann­el 4 í Bretlandi og HBO í Evr­ópu í gegn­um dreif­ing­ar­fyr­ir­tækið Red Arrow.

„Þegar sería er að fá þessi viðbrögð og við að fá viðbrögð frá þeim sem selja og kaupa efnið þá er spurt, „Hvað eruð þið með meira?“ og þá opn­ast á þetta sam­tal á milli okk­ar og er­lendra aðila. Sal­an úti er gríðarlega mik­il­væg og sér­stak­lega þegar fjár­mögn­un á Íslandi er hlut­falls­lega að minnka,“ seg­ir Þór­hall­ur.

Mega ekki ein­beita sér aðeins að er­lend­um markaði

Hann bæt­ir þó að við að sal­an er­lend­is megi aldrei koma í staðinn fyr­ir söl­una hér á landi. „Þetta má ekki verða þannig að við séum bara að fókusera á er­lend­an markað. Þá eru enn frek­ari kröf­ur um að er­lend­ir aðilar eigi meira í verk­efn­un­um, vinni kannski sjálf­ir end­ur­vinnsl­una, velji leik­ara eða láti hluta af verk­efn­inu vera tek­inn upp í þeirra heimalandi. Við vilj­um ekki þá þróun í krafti fjár­magns. Ég get nefnt tvö ný­leg at­vik þar sem er­lend­ir fjár­mögn­un­araðilar óskuðu eft­ir veiga­mikl­um breyt­ing­um á hand­riti gegn því að að setja meira fjár­magn í þætt­ina og þá að fara ekki gegn­um ís­lenska kvik­mynda­sjóðinn. Við höfnuðum því ein­fald­lega af prinsipp ástæðum,“ seg­ir Þór­hall­ur og bæt­ir við að með upp­bygg­ingu iðnaðar­ins hér á landi sé auðveld­ara að fram­leiða betra efni og hef­ur áhug­inn og fjár­magnið er­lend­is frá vaxið með því.

„Við höf­um ekki leng­ur áhyggj­ur af gæðunum. Við get­um haldið áfram að segja sög­urn­ar okk­ar og þegar við erum með for­ræði yfir skrif­un­um get­um við sagt sög­ur af ís­lensk­um veru­leika. Þá eru enn meiri lík­ur á að dreif­ing­araðilar er­lend­is vilji sjá það líka. Við vilj­um ekki endi­lega fram­leiða ein­hverj­ar spennuserí­ur til þess að þókn­ast ein­göngu ­fjár­fest­um er­lend­is frá. Fólki finnst áhuga­vert að sjá ís­lensk­ar sög­ur og því þarf að halda áfram. Þar get­ur Kvik­mynda­sjóður hjálpað en til þess þarf sam­stöðu og stuðning kom­andi rík­is­stjórn­ar. Það er mik­il­vægt að póli­tík­in skilji mik­il­vægi Kvik­mynda­sjóðs í heild­ar­fjármögn­un í ís­lenskri sjón­varps- og kvik­mynda­gerð.“

Hollywood hef­ur mik­il áhrif á veltu­töl­ur í iðnaðinum

Velt­an í ís­lenskri kvik­mynda­gerð hef­ur aldrei verið meiri og er það að miklu leyti vegna þeirra er­lendu verk­efna sem koma hingað til lands. Þór­hall­ur seg­ir það að mörgu leyti mjög já­kvætt, bæði eykst við það fagþekk­ing og fyr­ir­tæk­in í at­vinnu­grein­inni verða sterk­ari. Slík þróun get­ur þó líka verið hættu­leg. „Það má ekki verða þannig að við séum ein­göngu að þjón­usta er­lendu fyr­ir­tæk­in í stað þess að skrifa okk­ar eig­in hand­rit. Við ætt­um að skapa jafn­vægi þarna á milli.“

Sagafilm kom að tök­um fyr­ir banda­rísku Hollywood mynd­ina In­ter­stell­ar hér á landi árið 2013 en eft­ir það gerði fyr­ir­tækið ákveðnar breyt­ing­ar. „Við fór­um að sækja meira á evr­ópsk­an markað, aug­lýs­ing­ar og sjón­varps­verk­efni því það pass­ar starf­sem­inni hérna bet­ur. Þegar svona Hollywood mynd kem­ur hingað ryður hún nán­ast öllu hér til hliðar. Okk­ur fannst við þurfa að gera þetta í jafn­vægi við fyr­ir­tækið í heild sinni og það hent­ar okk­ur bet­ur.“

Sjá nánar hér: „Við vit­um að þau eru góð“

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR