Ráðist í aðra syrpu af „Ófærð“

Magnús Geir Þórðarson og Baltasar Kormákur á tökustað fyrstu syrpu Ófærðar.
Magnús Geir Þórðarson og Baltasar Kormákur á tökustað fyrstu syrpu Ófærðar.

RVK Studios og RÚV hafa náð samkomulagi um að hefja vinnu við nýja syrpu af hinni vinsælu glæpaseríu Ófærð. Þáttaröðin hefur notið almennrar hylli víða um heim, verið lofuð af gagnrýnendum og má ætla að vel á annan tug milljóna hafi horft á þá og enn á eftir að sýna þá víða. Áætlað er að önnur þáttaröð verði frumsýnd á RUV haustið 2018.

Um 5,7 milljónir sáu fyrstu þætti Ófærðar í Frakklandi og að meðaltali horfðu 1,2 milljón á þættina á BBC 4 í Bretlandi. Bresk og franskir fjölmiðlar voru á einu máli um að hér væri mjög góð sería á ferðinni og er hún á lista The Guardian yfir 10 bestu sjónvarpsseríur ársins. Ófærð verður frumsýnd á ZDF í Þýskalandi nú í haust.

“Við höfum átt í afar farsælu samstarfi við RÚV um þróun og framleiðslu Ófærðar, með þessum líka frábæra árangri, bæði hér heima og erlendis. Það er því mikið gleðiefni að ná samningum við RÚV um áframhaldandi samstarf og framleiðslu á annarri þáttaröð af Ófærð og við erum þakklát fyrir samstarfið við RÚV. RÚV er gríðarlega mikilvægt fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað og það er afar ánægjulegt hvað nýir stjórnendur RÚV hafa aukið áhersluna á þennan þátt Ég vona að RÚV verði gert kleift að halda áfram að sækja fram á þessum vettvangi, það hefur mikil margfeldisáhrif inn í greinina,”

segir Baltasar Kormákur og bætir við:

“Við erum afar spennt fyrir því að ná aftur saman þessum hæfileikaríka hópi til að vinna að annarri þáttaröð af Ófærð. Það má kannski segja að sagan sé rétt að byrja því við eigum eftir að kynnast söguhetjunum mun betur og fylgjast með þeim leysa fleiri margflóknar morðgátur.”

Og Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri segir:

”Þetta eru gleðitíðindi fyrir okkur á RÚV og íslenska sjónvarpsáhorfendur. Fyrsta þáttaröð reyndist meiriháttar sjónvarpsviðburður  sem óhætt er að segja að hafi heltekið gervalla þjóðina og sló öll áhorfsmet. Það er heiður fyrir RÚV að gefast tækifæri til að taka þátt í svona metnaðarfullri leikinni framleiðslu hjá Baltasar og samstarfsfólki hans sem stenst fyllilega samanburð við það allra besta sem gerist erlendis. Enda hefur árangurinn ekki látið á sér standa og verið einstaklega ánægjulegt að fylgjast með velgengni þáttaraðarinnar á erlendri grundu og það fyllir okkur stolti að eiga svo beina aðkomu að því að auka hróður íslenskrar kvikmyndagerðar og vita til þess að merki RÚV birtist milljónum spenntra sjónvarpsáhorfenda um heim allan. Það er metnaðarmál RÚV að bjóða upp á eins mikið af vönduð leiknu íslensku efni og kostur er og Ófærð er kannski skýrasta dæmið um hvert við viljum stefna og hvernig til getur tekist þegar nær allt gengur upp.”

Fyrsta sería Ófærðar var framleidd af Baltasar Kormáki og Magnúsi Viðari Sigurðssyni og handritshöfundar voru Sigurjón Kjartansson og Clive Bradley.  Sigurjón mun áfram leiða skrifin en í hópinn hafa nú bæst þær Yrsa Sigurðardóttir og Margrét Örnólfsdóttir.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR