„Hjartasteinn“ í keppni á Feneyjahátíðinni

Baldur Einarsson og Blær Hinriksson fara með aðalhlutverkin í Hjartasteini. (Mynd: Ingibjörg Torfadóttir)
Baldur Einarsson og Blær Hinriksson fara með aðalhlutverkin í Hjartasteini. (Mynd: Ingibjörg Torfadóttir)

Hjartasteinn, fyrsta kvikmynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar í fullri lengd, hefur verið valin í aðalkeppni Venice Days hluta kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk kvikmynd tekur þátt í keppni á þessari merku hátíð.

Hjartasteinn er ein af aðeins 12 kvikmyndum sem taka þátt í þessum keppnisflokki Venice Days en hátt í þúsund myndir hvaðanæva að úr heiminum sækja um.

Um er að ræða heimsfrumsýningu myndarinnar en hátíðin, sem verður 73 ára í ár, fer fram frá 31. ágúst til 10. september.

Hjartasteinn keppir um þrenn verðlaun í sínum flokki ásamt því að keppa um „Luigi De Laurentiis Award – Lion of the Future,“ 100.000 dollara peningaverðlaun sem allar fyrstu myndir leikstjóra keppa um þvert yfir alla flokka Feneyja hátíðarinnar.

Á síðasta ári var stórmynd Baltasars Kormáks, Everest, opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum.

Hjartasteinn gerist yfir sumar í litlu sjávarþorpi á Íslandi. Sagan fjallar um sterka vináttu tveggja drengja sem eru að taka sín fyrstu skref inn í unglingsárin og uppgötva ástina.

Tökur fóru fram haustið 2015 í Borgarfirði eystri, Seyðisfirði, Vopnafirði og Dyrhólaey.

Guðmundur Arnar leikstýrir og skrifar handritið að Hjartasteini. Guðmundur hefur getið sér góðs orðs sem leikstjóri og handritshöfundur á undanförnum árum fyrir margverðlaunaðar stuttmyndir sínar. Þar hefur Hvalfjörður reynst vera í sérflokki, enda unnið til 45 verðlauna á kvikmyndahátíðum víðs vegar um heiminn, þar á meðal sérstök dómnefndarverðlaun í aðalkeppni kvikmyndahátíðarinnar í Cannes árið 2013.

Framleiðendur Hjartasteins eru Anton Máni Svansson og Guðmundur Arnar Guðmundsson fyrir Join Motion Pictures og Lise Orheim Stender og Jesper Morthorst fyrir hið danska framleiðslufyrirtæki SF Studios Production. Stjórn kvikmyndatöku er í höndum Norðmannsins Sturla Brandth Grøvlen, Danirnir Anne Østerud og Janus Billeskov Jansen sjá um klippingu og Daninn Kristian Eidnes Andersen semur tónlist myndarinnar. Sölufyrirtæki myndarinnar á alþjóðavísu er hið þýska Films Boutique og Sena sér um innlenda dreifingu hennar.

Með helstu hlutverk fara Baldur Einarsson, Blær Hinriksson, Diljá Valsdóttir, Katla Njálsdóttir, Jónína Þórdís Karlsdóttir, Rán Ragnarsdóttir, Daniel Hans Erlendsson, Theodór Pálsson og Sveinn Sigurbjörnsson ásamt þeim Nínu Dögg Filippusdóttur, Sveini Ólafi Gunnarssyni, Nönnu Kristínu Magnúsdóttur, Søren Malling og Gunnari Jónssyni.

Sjá nánar hér: Hjartasteinn fyrsta íslenska kvikmyndin til að keppa á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum | Kvikmyndamiðstöð Íslands

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR