Heimildamyndin „Úti að aka“ frumsýnd 28. maí

Ólafur Gunnarsson og Einar Kárason á vegum úti.
Ólafur Gunnarsson og Einar Kárason á vegum úti.

Úti að aka er heimildamynd um ferð rithöfundanna Einars Kárasonar og Ólafs Gunnarssonar, sem létu draum sinn rætast um að fara þvert yfir Ameríku eftir Route 66 á 1960 árgerð af kadilakk og skrifa um það bók. Með í för voru útgefandinn Jóhann Páll Valdimarsson og kadilakksérfræðingurinn Steini í Svissinum ásamt Sveini M. Sveinssyni kvikmyndagerðarmanni í Plús film sem festi ævintýrið á filmu. Myndin verður frumsýnd í Bíó Paradís á fimmtudag.

Í myndinni er fylgst  með upplifun félaganna á ferðalaginu og hvað varð rithöfundunum að innblæstri við skrif bókar með sama nafni sem kom út haustið 2006. Þulartexti myndarinnar er unnin upp úr samnefndri bók og lesinn af rithöfundunum sjálfum.  Í myndinni er skyggnst inn í hugarheim þessara tveggja þekktu rithöfunda og þeir upplýsa áhorfendur um aðferðir sínar við öflun efnis og skrif bóka.

Sveinn M. Sveinsson stjórnandi myndarinnar. Fyrirtæki hans Plúsfilm, fagnar 30 ára starfsafmæli í ár.
Sveinn M. Sveinsson stjórnandi myndarinnar. Fyrirtæki hans Plúsfilm, fagnar 30 ára starfsafmæli í ár.

Ekki gekk allt upp samkvæmt plani og lýsir eftirfarandi setning Ólafs úr myndinni ástandi bílsins sem keyptur var til fararinnar ágætlega: „Mér var hugsað til bílasalans illræmda sem seldi mér bílinn og ég vonaði að það stæði í honum kótiletta sem hrykki ekki upp úr honum fyrr en sjálfur Andskotinn berði hann í bakið í Helvíti.“ Jóhann Páll hafði á orði að hann hyggðist gefa sjálfur út bók að ferð lokinni, sem fjallaði um hvernig lifa skuli af slíka helreið  með 4 geðsjúklingum þvert yfir Ameríku sem yrði notuð við  kennslu í geðhjúkrunarfræði í  framhaldsskólum landsins og Einar sagðist aldrei hafa verið á ferðalagi með jafn sóber gengi á ævi sinni.

Oft stóðu mælar andlegrar spennu í botni þegar ferðafélagarnir sátu sem í reykofni í gamla kaddanum og hægt var að rekja olíuslóðina á milli verkstæða.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR