Kitla fyrir „Snjór og Salóme“ opinberuð

Rammi úr Snjór og Salóme.
Rammi úr Snjór og Salóme.

Kitla kvikmyndarinnar Snjór og Salóme eftir Sigurð Anton Friðþjófsson hefur verið opinberuð. Myndin er væntanleg í haust á vegum Senu.

Snjór og Salóme er um Salóme, unga konu sem býr með besta vini og on/off-kærasta sínum Hrafni. Allt breytist þegar Hrafn barnar aðrar stelpu og hún flytur inn með þeim.

Með aðalhlutverk fara Anna Hafþórsdóttir, Telma Huld Jóhannesdóttir, Vigfús Þormar Gunnarsson, Guðmundur Snorri Sigurðarson, Ævar Már Ágústsson og Júlí Heiðar Halldórsson. Í öðrum hlutverkum eru m.a. Guðjón Karlsson, Gunnar Helgason og Ólafía Hrönn Jónsdóttir.

Framleiðendur eru Magnús Thoroddsen Ívarsson og Telma Huld Jóhannesdóttir. Leikstjóri og handritshöfundur er Sigurður Anton Friðþjófsson, en þetta sama teymi gerði einnig kvikmyndina Webcam sem sýnd var á síðasta ári.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR