Ingvar Þórðarson einn meðframleiðenda „Tom of Finland“

Frá tökum á Tom of Finland í Berlín á dögunum.
Frá tökum á Tom of Finland í Berlín á dögunum.

Ingvar Þórðarson og Sophie Mahlo, sem reka framleiðslufyrirtækið Neutrinos Productions í Berlín, eru meðframleiðendur á nýjustu mynd finnska leikstjórans Dome Karukoski, Tom of Finland. Ingvar var einnig meðframleiðandi síðustu myndar Karukoski, The Grump, ásamt Júlíusi Kemp.

Myndin byggir á ævi Touko Laaksonen, sem varð einn helsti íkon samkynhneigðra undir listamannsheitinu Tom of Finland. Hún hefst þegar hann snýr aftur til Helsinki eftir að hafa gegnt herþjónustu í seinni heimsstyrjöldinni. Þar var hann ofsóttur fyrir kynhneigð sína og neyddur til að giftast konu en uppgötvar síðan frelsi gegnum listsköpun, sér í lagi með teikningum af vöðvastæltum karlmönnum í djörfum stellingum. Verk hans urðu síðan kunn um veröld víða og urðu hluti af mannréttindabaráttu samkynhneigðra í Bandaríkjunum og víðar.

tom-of-finland-movieFinnar, Danir, Svíar og Þjóðverjar koma að fjármögnun þessarar myndar, en kostnaður nemur um 4 milljónum evra (rúmlega 562 milljónir króna). Protagonist Pictures í London sér um alþjóðlega sölu.

Tökur fara fram í Finnlandi, Svíþjóð, Berlín, Spáni og Los Angeles.

tom of finland prod dir
Helstu aðstandendur Tom of Finland: Sophie Mahlo framleiðandi yest til vinstri, Dome Karukoski leikstjóri annar frá vinstri, Ingvar Þórðarson framleiðandi annar frá hægri.

Aleksi Bardy, sem jafnframt skrifar handritið, Miia Haavisto og Annika Sucksdorff hjá Helsinki Film eru framleiðendur. Gunnar Carlsson hjá Anagram Väst í Svíþjóð og Miriam Nørgaard hjá Fridthjof Film í Danmörku eru meðframleiðendur ásamt Ingvari og Sophie í samvinnu við Mike Downey og Sam Taylor hjá Film and Music Entertainment (F&ME) í Bretlandi.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR