Aðsókn | „Reykjavík“ í 13. sæti, „Fyrir framan annað fólk“ í áttunda

facesponsReykjavík er nú í 13. sæti eftir fjórðu sýningarhelgi. Fyrir framan annað fólk er í 8. sæti eftir sjöttu sýningarhelgi og Hrútar er enn í sýningum eftir 45 vikur.

Reykjavík fékk alls 434 gesti í vikunni og þar af 125 um helgina. Myndin hefur nú fengið alls 2,387 gesti eftir fjórar sýningarhelgar.

Fyrir framan annað fólk fékk 783 gesti í vikunni og þar af 270 um helgina. Myndin hefur nú fengið alls 9,931 gest eftir sex sýningarhelgar.

Þá er Hrútar komin með alls 22,232 gesti eftir 45 sýningarhelgar.

Aðsókn á íslenskar myndir 28. mars - 3. apríl 2016

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
6Fyrir framan annað fólk7839,931
4Reykjavík434 2,387
45Hrútar-22,232
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Rétt er að taka fram að ritstjóri Klapptrés er jafnframt leikstjóri og handritshöfundur kvikmyndarinnar Reykjavík.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR