Greining | „Reykjavík“ áfram í tíunda sæti

facesponsReykjavík Ásgríms Sverrissonar er áfram í 10. sæti aðsóknarlistans eftir aðra sýningarhelgi. Fyrir framan annað fólk Óskars Jónassonar er í því sjötta og Hrútar Gríms Hákonarsonar er áfram í sýningum.

Reykjavík fékk alls 471 gest í vikunni og þar af 214 um helgina. Myndin hefur nú fengið alls 1,635 gesti.

Fyrir framan annað fólk fékk 1,673 gesti í vikunni og þar af 697 um helgina. Myndin hefur nú fengið alls 8,165 gesti eftir fjórar sýningarhelgar.

Þá er Hrútar komin með alls 22,125 gesti eftir 43 sýningarhelgar.

Aðsókn á íslenskar myndir 14.-20. mars 2016

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
4Fyrir framan annað fólk1,6738,165
2Reykjavík4711,635
43Hrútar5322,125
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Rétt er að taka fram að ritstjóri Klapptrés er jafnframt leikstjóri og handritshöfundur kvikmyndarinnar Reykjavík.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR