Greining | „Reykjavík“ opnar í tíunda sæti

Reykjavík Ásgríms Sverrissonar er í 10. sæti aðsóknarlistans eftir frumsýningarhelgina. Fyrir framan annað fólk Óskars Jónassonar er áfram í því fimmta og Hrútar Gríms Hákonarsonar er enn í sýningum.

Reykjavík fékk alls 1,214 gesti um helgina að meðtöldum forsýningum.

Fyrir framan annað fólk fékk 2,191 gesti í vikunni og hefur nú fengið alls 6,789 gesti eftir þrjár sýningarhelgar.

Þá er Hrútar komin með alls 22,105 gesti eftir 42 sýningarhelgar.

Aðsókn á íslenskar myndir 7-13. mars 2016

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
3Fyrir framan annað fólk2,1916,789
Reykjavík264 (helgin)1,214
42Hrútar8822,105
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Rétt er að taka fram að ritstjóri Klapptrés er jafnframt leikstjóri og handritshöfundur kvikmyndarinnar Reykjavík.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR