Þegar Ameríska nóttin opnaði á Óðinstorgi

Kvikmyndin Reykjavík eftir Ásgrím Sverrisson kemur í kvikmyndahús þann 11. mars. Aðalpersóna myndarinnar, Hringur (Atli Rafn Sigurðarson), er bíóhneigður og rekur búð með mynddiska. Búðin heitir „Ameríska nóttin“ eftir mynd Francois Truffaut La Nuit américaine, sem fjallar um kvikmyndaleikstjóra og teymi hans að taka upp kvikmynd. Búðinni var plantað á jarðhæð húss við Óðinstorg í miðborg Reykjavíkur.

Frá tökum. Dagur Benedikt Reynisson ljósameistari mundar græjurnar við Óðinstorg.
Frá tökum. Dagur Benedikt Reynisson ljósameistari mundar græjurnar við Óðinstorg.
Frá tökum: Hjörtur Jóhann Jónsson og Atli Rafn Sigurðarson fyrir utan búðina við Óðinstorg.
Frá tökum: Hjörtur Jóhann Jónsson og Atli Rafn Sigurðarson fyrir utan búðina við Óðinstorg.

Meðan á tökum stóð lögðu fjölmargir íbúar hverfisins og aðrir vegfarendur leið sína framhjá húsinu. Allur gangur var á því hvort fólk tæki eftir því að verið væri að gera kvikmynd. Þannig lýstu margir yfir mikilli ánægju sinni með að búið væri að opna slíka verslun og sögðust hlakka til að eiga við hana viðskipti!

Atriði úr Reykjavík: Hringur (Atli Rafn Sigurðarson) og Seli (Hjörtur Jóhann Jónsson) standa vaktina í Amerísku nóttinni.
Atriði úr Reykjavík: Hringur (Atli Rafn Sigurðarson) og Seli (Hjörtur Jóhann Jónsson) standa vaktina í Amerísku nóttinni.

Einn erlendur ferðalangur hafði komist óséður inn og gramsað áhugasamur í hillum í um hálftíma meðan tökuteymið stillti upp tækjum og tólum. Loks kom einn úr tökuliðinu auga á manninn og tjáði honum að ekki væri um raunverulega verslun að ræða… Ferðalangurinn var óneitanlega vonsvikinn enda mjög ánægður með úrvalið.

Atriði úr Reykjavík: María (Gríma Kristjánsdóttir) og Hringur (Atli Rafn Sigurðarson) spjalla í Amerísku nóttinni. Við dyrnar sést í Elsu (Nönnu Kristínu Magnúsdóttur) og Sela (Hjört Jóhann Jónsson).
Atriði úr Reykjavík: María (Gríma Kristjánsdóttir) og Hringur (Atli Rafn Sigurðarson) spjalla í Amerísku nóttinni. Við dyrnar sést í Elsu (Nönnu Kristínu Magnúsdóttur) og Sela (Hjört Jóhann Jónsson).
Kvikmyndakirkjan Ameríska nóttin við Óðinstorg.
Kvikmyndakirkjan Ameríska nóttin við Óðinstorg.
Rétt er að taka fram að leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar er einnig ritstjóri Klapptrés.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR