Skjaldborg 10 ára, skilafrestur til 24. mars

Sigurvegarar síðustu Skjaldborgar, Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Halla Kristín Einarsdóttir með Einarinn, sem þær hlutu fyrir Hvað er svona merkilegt við það?
Sigurvegarar síðustu Skjaldborgar, Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Halla Kristín Einarsdóttir með Einarinn, sem þær hlutu fyrir Hvað er svona merkilegt við það?

Skjaldborg-hátíð íslenskra heimildamynda, verður haldin um hvítasunnuhelgina, 13.-16. maí í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði. Umgjörðin verður með sérstaklega glæstu sniði í ár þar sem hátíðin fagnar 10 ára afmæli.

Skjaldborg hefur fyrir löngu sannað sig sem einn af mikilvægustu viðburðunum í almanaki íslenskrar kvikmyndagerðar. Hátíðin hefur á liðnum áratug orðið að mjög áhugaverðum vettvangi fyrir íslenska heimildamyndagerð, enda hafa margar af athyglisverðustu myndum undanfarinna ára fyrst litið dagsins ljós á hátíðinni.

Stefnt er að því að frumsýna um 15-20 nýjar, íslenskar heimildamyndir en auk þess verða áhugaverð verk í vinnslu kynnt á hátíðinni. Þá verða hefðbundnir jafnt sem óhefðbundnir utandagskrárviðburðir á sínum stað.

Opið er fyrir umsóknir til 24. mars en umsóknareyðublað og allar frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu hátíðarinnar.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR