Gengið frá þjónustusamningi til þriggja ára við Kvikmyndaskóla Íslands

Hilmar Oddsson rektor og Böðvar Bjarki Pétursson eigandi skólans undirrita þjónustusamning.
Hilmar Oddsson rektor og Böðvar Bjarki Pétursson eigandi skólans undirrita þjónustusamning.

Gengið hefur verið frá þjónustusamningi milli menntamálaráðuneytisins og Kvikmyndaskóla Íslands sem gildir til ársloka 2018. Aðstandendur Kvikmyndaskólans segja þetta muni gjörbreyta stöðu skólans.

Á vef skólans segir meðal annars:

Skammtímasamningar hafa frá árinu 2010 staðið öllu uppbyggingastarfi skólans mjög fyrir þrifum og hafa hindrað markvisst framtíðarskipulag. Samningurinn nú er sambærilegur við þá sem aðrir skólar starfa eftir.

Það er mikill léttir að þessari óvissu sé nú eytt og að nú getum við farið að einbeita okkur að skólastarfinu. Það er mikilvægt í þeirri spennandi uppbyggingu sem framundan er í íslenskum kvikmyndaiðnaði.

Segir Hilmar Oddsson, rektor Kvikmyndaskóla Íslands, en samningurinn tryggir skólanum um 80 milljóna króna árlega fjárveitingu.

Skólanum er jafnframt gert að styrkja eiginfjárhagsstöðu sína um 20 milljónir með hlutafjáraukningu. Segir Böðvar Bjarki Pétursson stjórnarformaður og fulltrúi eigenda skólans að þegar hafi verið gengið frá fjármögnun hennar.

Sjá nánar hér: Kvikmyndaskóli Íslands » Þjónustusamningur menntamálaráðuneytis og Kvikmyndaskóla Íslands til þriggja ára tryggður

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR