Söfnun fyrir stafrænum sýningarbúnaði í Skjaldborgarbíó í höfn

Stemmning á Skjaldborg.
Stemmning á Skjaldborg.

Söfnun sem staðið hefur yfir á Karolina Fund að undanförnu fyrir stafrænum sýningarbúnaði (DCP) í Skjaldborgarbíó á Patreksfirði er í höfn, nú þegar rúmur sólarhringur er eftir af söfnuninni.

Þegar þetta er skrifað hafa safnast um 2.2 milljónir króna eða 101% af takmarkinu.

Hópurinn sem stendur á bakvið söfnunina samanstendur af Lionsklúbbi Patreksfjarðar, aðstandendum Skjaldborgarhátíðarinnar og Kvikmyndaklúbbnum Kittý. Hópurinn hefur undanfarin misseri unnið að söfnuninni og var áður búið að safna átta milljónum af þeim u.þ.b. tíu sem þurfti til að klára verkefnið. Í því felst að kaupa kerfið, flytja það til landsins og koma því fyrir í Skjaldborg.

Ef meira safnast verða umfram fjármunir nýttir til kaupa á viðbótum við hljóðkerfi hússins. Mörg fyrirtæki, sjóðir og stofnanir hafa lagt söfnuninni lið og hefur mikið sjálfboðaliðastarf verið unnið við söfnunarátakið.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR