Stikla og plakat kvikmyndarinnar „Reykjavík“ opinberuð

elsaöhringur-útihús
Nanna Kristín Magnúsdóttir og Atli Rafn Sigurðarson eru Hringur og Elsa í Reykjavík eftir Ásgrím Sverrisson.

Stikla og plakat kvikmyndarinnar Reykjavík eftir Ásgrím Sverrisson eru kynnt í dag. Myndin kemur í kvikmyndahús í byrjun næsta árs.

Reykjavík er dramatísk kómedía  um sambönd og samskipti sem gerist í samtímanum. Samband Hrings við Elsu hangir á bláþræði. Þau og ung dóttir þeirra hafa fundið draumahúsið sitt en plönin fara úr skorðum og Elsa vill endurskoða allt. Meðan Hringur reynir að átta sig á hvað fór úrskeiðis og hvort þau geti borið saman brotin, flækist hann inní óuppgerð fortíðarmál Tolla besta vinar síns með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Með helstu hlutverk fara Atli Rafn Sigurðarson, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Guðmundur Ingi Þorvaldsson og Gríma Kristjánsdóttir.

Í öðrum hlutverkum eru meðal annars Hjörtur Jóhann Jónsson, Vala Kristín Eiríksdóttir, Margrét Friðriksdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Laufey Elíasdóttir, Björn Thors og Lilja Nótt Þórarinsdóttir.

Reykjavik CREDITS PosterFINAL 70x100cmReykjavík er fyrsta kvikmynd Ásgríms Sverrissonar í fullri lengd en hann hefur gert fjölda stuttmynda auk heimildamynda fyrir sjónvarp ásamt því að hafa fjallað um kvikmyndir í sjónvarpi, útvarpi, vef- og prentmiðlum um árabil. Hann nam kvikmyndaleikstjórn við The National Film and Television School í Bretlandi.

Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp framleiða myndina fyrir hönd Kvikmyndafélags Íslands.

Rétt er að taka fram að leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar er einnig ritstjóri Klapptrés.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR