Greining | Litlar breytingar á aðsókn

Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum er aðsóknarhæsta heimildamynd ársins.
Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum er aðsóknarhæsta heimildamynd ársins.

Litlar breytingar eru á aðsóknarlistanum þessa vikuna. Þrestir Rúnars Rúnarssonar er áfram í tíunda sæti eftir þriðju sýningarhelgi og Everest Baltasars áfram í því þriðja.

2,771 sáu Everest í vikunni og hefur þá myndin fengið alls 64,560 gesti. Heildartekjur myndarinnar á heimsvísu nema nú tæpum 177 milljónum dollara.

Aðsókn á Þresti Rúnars Rúnarssonar nam 576 manns í vikunni. Heildaraðsókn er 3,021 gestir eftir þriðju sýningarhelgi.

Heimildamyndin Hvað er svona merkilegt við það? eftir Höllu Kristínu Einarsdóttur er í 23. sæti en 197 manns sáu hana í vikunni. Heildaraðsókn nemur 475 manns.

Heimildamyndin Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum eftir Ölmu Ómarsdóttur er í 21. sæti eftir fjórðu sýningarhelgi. 299 sáu hana í vikunni en alls hefur hún fengið 2,650 gesti. Hún er því aðsóknarhæsta heimildamyndin á árinu og með stærri heimildamyndum aðsóknarlega séð hin síðari ár.

Heimildamyndin Jóhanna – síðasta orrustan eftir Björn B. Björnsson fékk 69 manns í vikunni en alls hafa 470 séð hana eftir þrjár sýningarhelgar.

Hrútar og Fúsi eru enn í sýningum; sú fyrrnefnda er komin með 21,175 gesti, sú síðarnefnda með 12,902 og tók smá kipp í vikunni uppávið í kjölfar Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs.

Aðsókn á íslenskar myndir 26. október til 2. nóvember 2015

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
7Everest2,77164,560
3Þrestir576 3,021
4Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum299 2,650
2Hvað er svona merkilegt við það?197475
23Hrútar15321,175
3Jóhanna - síðasta orrustan69 470
32FúsiEkki vitað12,902
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR