Tökur á „Ég man þig“ hefjast í næsta mánuði, Ágústa Eva og Þorvaldur Davíð í aðalhlutverkum

Óskar Þór Axelsson leikstjóri.
Óskar Þór Axelsson leikstjóri.

Tökur á mynd Óskars Þórs Axelssonar, Ég man þig, hefjast í næsta mánuði á Hesteyri á Vestfjörðum. Byggt er á samnenfdri skáldsögu Yrsu Sigurðardóttur. Ágústa Eva Erlendsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson fara með aðalhlutverkin. Zik Zak framleiðir ásamt Sigurjóni Sighvatssyni.

Vísir segir frá:

Tökuteymið er væntanlegt til Vestfjarða í næsta mánuði þar sem haldið verður til Hesteyrar til að festa þessa sögu á filmu. Er það fyrsti áfangi í tökum kvikmyndarinnar en einnig er á dagskránni að taka upp á Ísafirði og svo suður í Reykjavík samkvæmt heimildum Vísis en það mun þó ekki gerast fyrr en á næsta ári.

Þeir sem hafa komið til Hesteyrar vita að það er enginn hægðarleikur að hafast þar við svo síðla árs. Þorpið fór í eyði rétt eftir miðja síðustu öld en þar standa níu hús sem notuð eru sem sumarhús. Ekki er gert ráð fyrir dvöl í þeim til lengri tíma yfir vetrarmánuðina og þarf til að mynda að fara þangað með nokkurra daga fyrirvara áður en tökuteymið mætir á staðinn til að kynda upp húsin sem á að dvelja í. Líklegast verða Læknishúsið, þar sem rekin er ferðaþjónusta á sumrin, og Skólinn fyrir valinu.

Sagan hennar Yrsu hefur notið töluverðra vinsælda en kvikmyndahandritið vann leikstjórinn sjálfur Óskar Þór ásamt Ottó Borg. Verkefnið hefur fengið 90 milljóna króna styrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands en Óskar sagði í samtali við Fréttablaðið í mars síðastliðnum að myndin yrði draugaþriller“.

Sjá nánar hér: visir.is

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR