„Hvað er svona merkilegt við það?“ í bíó

hvað er svona merkilegt við það-posterAlmennar sýningar hefjast í kvöld á verðlaunaheimildamynd Höllu Kristínar Einarsdóttur, Hvað er svona merkilegt við það? sem fjallar um kvennaframboðin sem birtust á stjórnmálasviðinu á níunda áratug síðustu aldar í kjölfar hinna róttæku kvennabaráttu áratugarins á undan.

Myndin hlaut Einarinn, áhorfendaverðlaun Skjaldborgarhátíðarinnar fyrr á árinu og er framhald annarrar myndar Höllu Kristínar, Konur í rauðum sokkum, sem einnig hlaut sömu verðlaun 2009.

Hrafnhildur Gunnarsdóttir framleiddi myndina fyrir Krumma Films.

Framleiðendur myndarinnar hafa sett sér það markmið að fá 12.167 manns í bíó eða einum fleiri en Lífsleikni Gilz fékk í fyrra og skora á alla að mæta og fyllast eldmóði á stórskemmtilegri nýrri heimildamynd um merkilega lýðræðistilraun.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR