Heimildamyndin „Jóhanna – síðasta orrustan“ frumsýnd

Jóhanna-síðasta orrustan posterBíó Paradís frumsýnir heimildamynd Björns B. Björnssonar, Jóhanna – síðasta orrustan, fimmtudaginn 15. október næstkomandi. Myndin segir frá síðustu mánuðum Jóhönnu í embætti forsætisráðherra Íslands.

Fylgst með störfum Jóhönnu og því sem gerist bak við tjöldin í Stjórnarráðinu. Kastljósinu er einkum beint að baráttu hennar og annarra fyrir því að fá Alþingi til að samþykkja nýja stjórnarskrá Íslands.

Myndin hefst á landsfundi Samfylkingarinnar þegar Árni Páll Árnason tekur við af Jóhönnu sem formaður flokksins.

Árni Páll boðar ný vinnubrögð og lætur af þeirri stefnu Jóhönnu að reyna að knýja stjórnarskrána í gegnum þingið og vill þess í stað skapa þverpólitíska samstöðu um að fresta hluta hennar til næsta kjörtímabils.

Þessi stefna veldur miklum ágreiningi við þá sem vilja klára málið, jafnt innan Samfylkingarinnar og utan. Í kjölfarið verða mikil átök á þingi og í bakherbergjum um stjórnarskrármálið – og engin leið að vita hvaða endi það muni fá.

Þetta er í fyrsta skipti sem heimildarmynd af þessari tegund er gerð hér á landi, þegar fylgst er með stjónmálamanni í valdastöðu og öllum þeim vendingum sem verða í meðferð þingsins á mikilvægu máli – eins og stjórnarskrá Íslands.

Stjórnandi myndarinnar er Björn B. Björnsson og er hann jafnframt handritshöfundur ásamt Elísabetu Ronaldsdóttur, sem klippir myndina. Kvikmyndatöku annaðist Jón Karl Helgason og tónlistin í myndinni er eftir Tryggva M. Baldvinsson. Framleiðandi er Reykjavík films.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR