Baltasar: Lítil þekking á þörfum kvikmyndagerðar í bankakerfinu

Baltasar tökur EverestÁ málþingi sem RIFF stendur fyrir með yfirskriftinni Er íslensk kvikmyndagerð góð fjárfesting? sagðist Baltasar Kormákur oft hafa lent í miklum vandræðum með íslenska bankakerfið, meðal annars við gerð Ófærðar, þótt myndin hafi notið ýmissa styrkja.

Kjarninn greinir frá:

Baltasar sagðist oft hafa lent í miklum vandræðum með íslenska bankakerfið, meðal annars í gerð á Ófærð, þótt myndin hafi notið ýmissa styrkja. Það hafi vantað pening á meðan á framleiðsluferlinu stóð, styrkir og önnur fjármögnun komi inn þegar verkinu sé skilað. „Það er svo lítil þekking inni í bankakerfinu og fjármálakerfinu,“ sagði hann. Það sé svo mikið fjallað um fjárhagslegu vandamálin en ekki um það sem gangi vel. Á  endanum hafi Gamma stigið inn í verkefnið með 500 milljónir króna. „Þeir eru að græða á þessu,“ sagði Baltasar. Á endanum hafi því tekist að fjármagna verkefnið upp á tæpan milljarð.þessu,“ sagði Baltasar. Á endanum hafi því tekist að fjármagna verkefnið upp á tæpan milljarð.

Skoða má umræðurnar hér:

Sjá nánar hér: Ófærð var seld til Bandaríkjanna fyrir 1,2 milljónir dala | Kjarninn

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR