Bíó Paradís tekur upp Bechdel prófið

Dögg Mósesdóttir með
Dögg Mósesdóttir formaður WIFT á Íslandi með Bechdel verðlaunin.

Dögg Mósesdóttir formaður WIFT tók í dag við Bechdel verðlaununum fyrir hönd WIFT sem Bíó Paradís veitir í tilefni þess að bíóið hefur nú tekið up A-Rating kerfið þar sem allar kvikmyndir í sýningu verða Bechdel prófaðar.

Í tilkynningu frá Bíó Paradís segir:

WIFT á Íslandi hlýtur sérstakan verðlaunagrip af þessu tilefni, Bechdel stimpilinn úr eikarvið, þar sem samtökin hafa lagt mikið á vogarskálarnar til að benda á skökk kynjahlutföll í kvikmyndamenningu, en rétt er að benda á að með Bechdel merkingin er ekki gæðastimpill heldur tól til þess að benda á skarðan hlut kvenna í kvikmyndum.

Til þess að standast Bechdel prófið þarf myndin að uppfylla eftirfarandi þrjú skilyrði:

1) Það þurfa að vera að minnsta kosti tvær (nafngreindar) konur í henni
2) sem tala saman
3) um eitthvað annað en karlmenn

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR