Stikla „Sjóndeildarhrings“ er hér

horizon posterStikla og plakat heimildamyndarinnar Sjóndeildarhrings eða Horizon eftir Berg Bernburg og Friðrik Þór Friðriksson hafa verið opinberuð. Myndin verður frumsýnd á Toronto hátíðinni í september.

Sjóndeildarhringur fjallar um listmálarann Georg Guðna Hauksson, sem lést aðeins fimmtugur að aldri árið 2011. Á fyrstu einkasýningu hans í Nýlistasafninu í Reykjavík árið 1985 birtist einstök sýn á íslenskt landslag í fjallamyndum hans. Sýningin markaði upphafið að ferli Georgs Guðna sem frumkvöðuls í endurreisn landslagsmálverksins.

Myndinni er stýrt af Friðrik Þór Friðrikssyni og Bergi Bernburg. Friðrik Þór framleiðir einnig myndina fyrir framleiðslufyrirtækið Sjóndeildarhring. Stjórn kvikmyndatöku og klipping er í höndum Bergs Bernburg og meðframleiðslufyrirtæki er hið danska ResearchGruppen. Myndin kemur í almennar sýningar á Íslandi í haust.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR