Greining | „Hrútar“ komin yfir sextán þúsund gesti

Sigurður Sigurjónsson í Hrútum Gríms Hákonarsonar.
Sigurður Sigurjónsson í Hrútum Gríms Hákonarsonar.

Aðsókn á Hrúta Gríms Hákonarsonar er áfram á fínu róli eftir sjöundu sýningarhelgi. Myndin er í sjöunda sæti aðsóknarlistans en 454 sáu myndina um helgina og alls 1.005 í vikunni. Heildarfjöldi gesta nemur nú 16.327 manns.

Albatross Snævars Sölvasonar er nú í tólfta sæti eftir fjórðu sýningarhelgi. Myndin fékk 53 gesti um helgina en alls 210 í vikunni. Heildaraðsókn er komin í 4.250 gesti.

Fúsi Dags Kára er komin í 11.746 manns í heildaraðsókn og situr nú í 13. sæti eftir 16 sýningarhelgar. 67 sáu hana um helgina en aðsókn í vikunni nam 100 gestum.

Bakk, kvikmynd Gunnars Hanssonar og Davíðs Óskars Ólafssonar, er í fimmtánda sæti eftir tíundu sýningarhelgi, en 53 sáu hana í vikunni sem leið. Helgaraðsóknin nam 11 manns en heildaraðsókn er komin í 7.499 manns.

Aðsókn á íslenskar myndir vikuna 6.-12. júlí 2015:

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
7Hrútar1.00516.327
4Albatross210 4.250
16Fúsi10011.746
10Bakk53 7.499
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR