„Hrútar“ tilnefnd til Lux verðlaunanna

Hrútar Sigurður Sigurjónsson víttHrútar Gríms Hákonarsonar er meðal tíu mynda sem tilnefndar eru til Lux verðlauna Evrópusambandsins en þau hafa verið veitt síðan 2007. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk kvikmynd er tilnefnd til verðlaunanna.

Grímur Hákonarson og Grímar Jónsson við tilnefninguna í Karlovy Vary í gær.
Grímur Hákonarson og Grímar Jónsson við tilnefninguna í Karlovy Vary í gær.

Þrjár af þessum 10 myndum komast áfram í undanúrslit, verða sýndar á Feneyjarhátíðinni, þýddar og textaðar á öll 24 opinber tungumál Evrópusambandsins og sýndar í öllum 28 aðildarríkjunum. Sigurvegari verður svo kunngjörður í lok árs.

Grímar Jónsson, framleiðandi Hrúta segir:

”Ég verð að viðurkenna að ég vissi ekki um þessi verðlaun fyrr en ég fékk sendar upplýsingar um að Hrútar væru tilnefndir og ég átta mig betur á því núna hvað er í húfi og hversu merkilegt þetta er. Það eru allir að óska okkur Grími til hamingju hérna úti og manni líður hálfpartinn eins og maður hafi verið að vinna eitthvað bara við það eitt að vera tilnefndur. Það væri magnað að komast áfram í 3 mynda úrslit og það verður ljóst eftir 2 vikur. Sjö, níu, þrettán.”

 

Tilkynnt var um tilnefningarnar á yfirstandandi Karlovy Vary hátíð. Meðal tilnefndra mynda eru nýlegar verðlaunamyndir frá Berlín, Cannes og fleiri hátíðum:

  • 45 Years, Andrew Haigh (Bretland)
  • A Perfect Day, Fernando León de Aranoa (Spánn)
  • Hrútar, Grímur Hákonarson (Ísl-Dan)
  • The Measure Of A Man, Stéphane Brizé (Frakkland)
  • Mediterranea, Jonas Carpignano (Ítalía-Bandaríkin-Þýskaland-Frakkland-Quatar)
  • Mustang, Deniz Gamze Ergüven (Frakkland-Þýskaland_Tyrkland-Quatar)
  • Son Of Saul, László Nemes (Ungverjaland)
  • Toto And His Sisters, Alexander Nanău (Rúmenía-Ungverjaland-Þýskaland)
  • The Lesson, Kristina Grozeva and Petar Valchanov (Búlgaría-Grikkland)
  • The High Sun, Dalibor Matanić (Króatía-Slóvenía-Serbía)

Sjá nánar hér: ’45 Years’, ‘Son Of Saul’ among LUX Prize finalists

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR