Benedikt Erlingsson opnaði Sheffield Doc Fest með nýrri heimildamynd

the greatest shows on earth - benedikt erlingsson doc

Ný heimildamynd Benedikts Erlingssonar, The Greatest Shows on Earth: A Century of Vaudeville, Circuses and Carnivals, var heimsfrumsýnd sem önnur af opnunarmyndum Sheffield Doc/Fest, einnar virtustu heimildamyndahátíðar heims, síðastliðið föstudagskvöld.

Myndin fjallar um farandsirkusa, kabarett og aðrar tegundir sýninga sem geta talist tilheyra „gamla tímanum.“ Safnefni og tónlist Georgs Hólm, Orra Dýrasonar og Hilmars Arnar Hilmarssonar er blandað saman svo úr verður merkilegt ferðalag aftur í tímann.

Meðal annars er í myndinni efni frá Jóhanni risa sem hann tók sjálfur og einnig myndir af Jóhannesi á Borg að berjast við Indjána og fleira þjóðlegt. Mestanpart er myndefnið þó fengið frá hinu svokallaða National Fairground Archive sem Sheffield háskólinn geymir og inniheldur meðal annars evrópskt og amerískt efni alveg aftur til loka nítjándu aldar.

The Greatest Shows on Earth tilheyrir heimildamyndaseríu sem kallast „Archive Music Films“ og er framleidd af Margréti Jónasdóttur fyrir Sagafilm, í meðframleiðslu Crossover Labs verkefnisins, sem Sheffield Doc/Fest er samvinnuaðili að ásamt BBC Storyville, SVT og RÚV en myndin verður meðal annars sýnd þar.

Stiklu myndarinnar má sjá hér að neðan:

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR