Greining | „Bakk“ komin á sjötta þúsundið

bakkBakk, kvikmynd Gunnars Hanssonar og Davíðs Óskars Ólafssonar, er áfram í þriðja sæti aðsóknarlista FRÍSK, en 1.575 manns sáu hana í vikunni sem leið.

Helgaraðsóknin nam 566 manns en heildaraðsókn er komin í 5.465 manns.

Fúsi Dags Kára er komin í 10.684 manns í heildaraðsókn. Hún er áfram í 9. sæti eftir 9 sýningarhelgar. 148 sáu hana um helgina en 360 í vikunni.

Aðsókn á íslenskar myndir vikuna 18.-24. maí 2015:

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
3Bakk1.5755.465
9Fúsi360 10.684
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR