„Þeir sem þora“ sýnd í Bíó Paradís

þeir sem þora posterHeimildamynd Ólafs Rögnvaldssonar og Kolfinnu Baldvinsdóttur, Þeir sem þora, var frumsýnd á Íslandi í gær og verður sýnd í Bíó Paradís næstu daga. Myndin lýsir baráttu Eystrasaltsríkjanna, – Eistlands, Lettlands og Litháen, – í skjóli umbótastefnu Mikaels Gorbasjovs, fyrir endurreisn sjálfstæðis þeirra árin 1986 til 1991.

Í kynningu segir:

Myndin fangar örlagaríka atburðarás sem fór af stað í höfuðborgum Eystrasaltsríkjanna, Vilnius, Riga og Tallinn, í janúar 1991, þegar Sovétherinn reyndi á grimmúðlegan hátt að kæfa anda frelsis og ganga milli bols og höfuðs á hreyfingum sjálfstæðissinna. Á þessari örlagastundu var utanríkisráðherra Íslands, Jón Baldvin Hannibalsson, eini vestræni utanríkisráðherrann sem heimsótti höfuðborgirnar þrjár og sýndi með því stuðning þjóðar sinnar í verki.

Persónuleg tengsl og sérlegur áhugi Jóns Baldvins á Sovétríkjunum voru helsti hvatinn. Hann var, ásamt danska utanríkisráðherranum Uffe Elleman Jensen, dyggasti stuðningsmaður Eystrasaltsríkjanna innan Sameinuðu þjóðanna, Nato og fleiri stofnanna og talaði máli þeirra á vettvangi alþjóðlegrar stjórnmálaumræðu þegar færi gafst. Þeir gerðu sér báðir grein fyrir því að alþjóðasamfélagið hafði í raun lítinn sem engan áhuga á þessum litla afkima Sovétríkjanna og voru jafnframt þeirrar skoðunar að innlimun Eystrasaltsríkjanna í Sovétríkin í seinni heimstyrjöldinni stæðist ekki lög. Vestrænu stórveldin voru á þessum tíma önnum kafin við að gæta annarra “mikilvægari” hagsmuna , sem voru stríðsrekstur í Írak og sameining Þýskalands, og þeim var jafnframt umhugað um að veikja ekki stöðu Gorbasjovs heima fyrir. Í kjölfar valdaráns í Moskvu í águst 1991 varð Ísland fyrsta ríki heims til að viðurkenna sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna. Í kjölfarið fylgdi hröð atburðarás og Sovétríkin heyrðu sögunni til í desember sama ár.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR