„Salóme“ hlaut Menningarverðlaun DV

Handhafar Menningarverðlauna DV 2015. Ljósmynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson.
Handhafar Menningarverðlauna DV 2015. Ljósmynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson.

Heimildamyndin Salóme eftir Yrsu Rocu Fannberg hlaut í dag menningarverðlaun DV í flokki kvikmyndalistar. Verðlaunin voru afhent í 36. skipti í Iðnó í dag, en þau eru veitt fyrir framúrskarandi árangur á listasviðinu á árinu 2014.

Verðlaunin voru veitt í níu flokkum: bókmenntum, fræðum, byggingarlist, danslist, hönnun, kvikmyndalist, leiklist, myndlist og tónlist. Þar að auki var tilkynnt um sigurvegara úr netkosningu dv.is, en sigurvegarinn hlaut lesendaverðlaun DV, og forseti Íslands afhenti árleg heiðursverðlaun, en þau hlaut Guðrún Helgadóttir, barnabókahöfundur.

Eftirfarandi er listi yfir verðlaunahafana.

  • Hönnun: Sigga Heimis
  • Byggingarlist: Studio Granda fyrir Hverfisgötu 71a
  • Bókmenntir: Guðrún Eva Mínervudóttir fyrir skáldsöguna Englaryk
  • Myndlist: Hreinn Friðfinnsson
  • Kvikmyndir: Salóme, heimildarmynd eftir Yrsu Rocu Fannberg
  • Tónlist: Eistnaflug
  • Fræði: Ofbeldi á heimili – Með augum barna í ritstjórn Guðrúnar Kristinsdóttur
  • Leiklist: Marta Nordal Fyrir leikstjórn sína á Ofsa eftir sögu Einars Kárasonar.
  • Danslist: Ásrún Magnúsdóttir fyrir Church of Dance, frumsýnt á Reykjavík Dance Festival
  • Lesendaverðlaun dv.is:  Enginn dans við Ufsaklett eftir Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur
  • Heiðursverðlaun: Guðrún Helgadóttir
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR