Anita Wall hlaut Guldbaggen fyrir „Hemma“

Anita Wall í Hemma.
Anita Wall í Hemma.

Anita Wall vann í gærkvöldi Guldbaggen, verðlaun sænsku  kvikmyndaakademíunnar fyrir leik sinn í sænsk/íslensku kvikmyndinni Hemma.

Tökur á myndinni fóru fram á Eyrarbakka sumarið 2012 með íslensku tökuliði en stór hluti af aðstandendum myndarinnar eru Íslendingar.  Eftirvinnsla fór einnig öll fram hér á landi en myndin hlaut eftirvinnslustyrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Valdís Óskarsdóttir og Sigurður Eyþórsson klipptu myndina, hljóðhönnun var í höndum Kjartans Kjartanssonar og Ingvars Lundberg hjá Bíóhljóð ehf., litgreining og samsetning var í umsjá Eggerts Baldvinsson hjá RGB Iceland ehf.

Framleiðendur myndarinnar eru Anna G. Magnúsdóttir og Anders Granström fyrir sænska framleiðslufyrirtækið Little Big Productions. Íslenskir meðframleiðendur eru Guðrún Edda Þórhannesdóttir og Friðrik Þór Friðriksson fyrir Kvikmyndafélagið Hughrif ehf.

Sena dreifir myndinni á Íslandi.

Einnig má geta þess að íslenski leikarinn, Sverrir Guðnason hlaut Guldbaggen í gær fyrir aðalhlutverk í kvikmyndinni Flugparken en hann var tilnefndur í tveimur flokkum. Sverrir hlaut einnig Guldbaggen í fyrra fyrir leik sinn í kvikmyndinni Monica Z ásamt sænsk/íslensku leikkonunni Edda Magnason.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR