Stockfish hátíðin kynnir fyrstu myndirnar

Jean-Luc Godard, eldhress enn.
Jean-Luc Godard, eldhress enn.

Stockfish – evrópsk kvikmyndahátíð í Reykjavík verður haldin í Bíó Paradís dagana 19. febrúar til 1. mars 2015. Á hátíðinni verða sýndar 30 kvikmyndir sem hlotið hafa mikla athygli á hátíðum víða um heim. Von er á þekktum verðlaunaleikstjórum og öðru alþjóðlegu kvikmyndagerðarfólki hingað til lands, auk þess sem boðið verður upp á ýmsa viðburði, fyrirlestra og vinnustofur fagfólks í tengslum við hátíðina.

Tækifæri til að sjá kvikmyndir sem alla jafna eru ekki sýndar hér á landi.

Stockfish hefur nú tilkynnt um fyrstu fimm verðlaunakvikmyndirnar sem verða sýndar á hátíðinni – en samtals verða um þrjátíu kvikmyndir á efnisskránni.

Von er á kínverskum spennutrylli sem jafnframt var vinningsmynd kvikmyndahátíðarinnar í Berlín 2014, þrívíddarmynd eftir franska meistarann Jean-Luc Godard, raunsæislegt franskt drama um miðaldra gleðikonu sem hlaut fjölda verðlauna á kvikmyndahátíðinni í Cannes 2014, kvikmynd um þekktan og umdeildan franskan rithöfund sem hnepptur er í ánauð og argentínsk kvikmynd sem tilnefnd er til Óskarsverðlauna, en hún samanstendur af sex sjálfstæðum sögum sem tengdar eru með hefndarþema.

Verðlaunakvikmyndirnar fimm eru:

Wild Tales

Kvikmyndin er tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár sem besta erlenda myndin, en hún keppti einnig til aðalverðlauna kvikmyndahátíðarinnar í Cannes 2014. Hún samanstendur af sex sjálfstæðum sögum sem allar tengjast ákveðnu hefndarþema. Blekkingar í ástum, draugar fortíðar, harmleikir og ofbeldi er meðal þess sem tekið er fyrir í sögunum, sem eru í senn grátbroslegar, kaldhæðnar og svartar.

Party Girl

Myndin vann tvenn verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Cannes 2014. Auk þess var hún opnunarmyndin í “Un Certain Regard” flokknum á sömu hátíð. Kvikmyndin er frumraun þriggja ungra franskra leikstjóra og segir frá Angelique sem er sextugur barþjónn. Henni býðst tækifæri að snúa baki við villtu líferni þegar fastakúnni biður hana um að giftast sér.

Black Coal Thin Ice

Black Coal, Thin Ice vann Gullna Björninn á kvikmyndahátíðinni í Berlín 2014. Sagan gerist í litlu bæjarfélagi í Norður-Kína árin 1999-2004 og fjallar um atburðarás sem fer í gang eftir að lík finnast í bænum. Hér er um að ræða spennutrylli sem er sveipaður dulúð, spennu og ástríðum. Mynd sem engin ætti að láta fram hjá sér fara.

Goodbye to Language 3D

Goodbye to Language 3D er nýjasta kvikmynd meistarans Jean-Luc Godard sem kominn er á níræðisaldur. Þetta er hans fyrsta mynd í þrívídd en eins og honum einum er lagið notfærir hann sér það á hátt sem enginn hefur gert áður. Myndin vann dómnefndarverðlaunin í Cannes 2014.

The Kidnapping of Michel Houellebecq

Stórkostleg gamanmynd um ólátabelgi sem taka upp á því að ræna franska rithöfundinum Michel Houellebecq (sem leikur sjálfan sig) en hann endar á að gera þeim lífið leitt. Myndin vann handritsverðlaunin á Tribeca kvikmyndahátíðinni 2014, auk þess sem hún var tilnefnd sem besta kvikmyndin á sömu hátíð, en myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín 2014.

Höfðar til allra sem hafa áhuga á grósku kvikmyndagerðar

Þetta er í fyrsta sinn sem Stockfish – evrópsk kvikmyndahátíð í Reykjavík er haldin en hún byggir á grunni Kvikmyndahátíðar í Reykjavík sem stofnuð var 1978. Hátíðinni er ætlað annars vegar að höfða til fólks í kvikmyndagreininni og hinsvegar allra sem hafa áhuga á grósku alþjóðlegrar kvikmyndagerðar.

Að baki hátíðarinnar standa sex fagfélög sem koma að kvikmyndagerð hér á landi. Þau eru:  SÍK- Samband Íslenskra kvikmyndaframleiðenda, SKL – Samtök kvikmyndaleikstjóra, FK – Félag kvikmyndagerðarmanna, FÍL – Félag Íslenskra leikara, WIFT – Konur í kvikmyndum og sjónvarpi og FLH – Félag leikskálda og handritshöfunda og skipa fulltrúar þessara félaga stjórn hátíðarinnar.

Meðal samstarfsaðila eru Reykjavíkurborg og Evrópustofa.

Stockfish – evrópsk kvikmyndahátíð í Reykjavík verður haldin í samstarfi við EDDUNA – íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin en Eddan 2015 verður haldin í Silfurbergi í Hörpu laugardaginn 21. febrúar.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR