Greining | Hægist á Sveppa

algjör Sveppi og Gói bjargar málunum still2-sveppiAlgjör Sveppi og Gói bjargar málunum fellur í fimmta sæti aðsóknarlistans eftir fimmtu sýningarhelgi. Fall milli vikna er nokkuð skart eða 68% en engu að síður sáu myndina 2.230 manns í liðinni viku, þar af 653 um helgina. Myndin hefur fengið alls 31.274 gesti. Vafi leikur á hvort hún nái vinsælustu Sveppamyndinni, Algjör Sveppi og dularfulla hótelherbergið, sem út kom 2010 og var önnur í röðinni. Sú mynd fékk alls 37.506 gesti.

Afinn er nú í tólfta sæti eftir tíundu sýningarhelgi. Alls hafa 14.833 séð myndina frá upphafi, þar af 87 síðastliðna viku.

Grafir og bein er áfram í 14. sæti eftir fimmtu sýningarhelgi með alls 57 gesti í vikunni. Samtals hafa 3.594 séð myndina frá upphafi.

Borgríki 2 Ólafs de Fleur er einnig áfram í 16. sæti eftir sjöundu sýningarhelgi. 29 sáu myndina í nýliðinni viku. Heildaraðsókn frá upphafi nemur 11.024 manns.

AÐSÓKN VIKUNA 24.-30. nóv. 2014:

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
5Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum 2.23031.274
9Afinn8714.833
5Grafir og bein573.536
7Borgríki 22911.024
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR