„Bakk“ kitlan er hér

Frá tökum á Bakk í sumar. Saga Garðarsdóttir og Gunnar Hansson í hlutverkum sínum.
Frá tökum á Bakk í sumar. Saga Garðarsdóttir og Gunnar Hansson í hlutverkum sínum.

Kitla gamanmyndarinnar Bakk í leikstjórn Gunnars Hanssonar og Davíðs Óskars Ólafssonar hefur verið opinberuð og má skoða hana hér að neðan. Áætlað er að frumsýna myndina um næstu páska.

Myndin fjallar um tvo æskuvini sem bakka á bíl hringinn í kringum Ísland. Það gengur ýmislegt á á ferðalaginu og þurfa félagarnir að glíma við sjálfa sig, hvorn annan, fortíðina og ýmislegt annað óvænt.

Handritið og sagan er eftir Gunnar Hansson sem einnig fer með eitt aðalhlutverkið ásamt þeim Víkingi Kristjánssyni og Sögu Garðarsdóttur en Gunnar og Davíð Óskar Ólafsson leikstýra myndinni í sameiningu. Myndin er framleidd af Mystery.

Með önnur hlutverk fara þau Þorsteinn Gunnarsson, Hallgrímur Ólafsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Þorsteinn Bachmann, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Friðrik Friðriksson, Hanna Maria Karlsdóttir, Halldór Gylfsson, Þorsteinn Guðmundsson, Edda Arnljótsdóttir, Kjartan Bjargmundsson, Höskuldur Sæmundsson, Guðjón Pálmarsson, Birgir Ísleifur Gunnarsson, Ragnar Ísleifur Bragsson, Salóme Gunnarsdóttir og Friðgeir Einarsson.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR