Greining | Sveppi 4 komin yfir þrjátíu þúsund gesti

algjör Sveppi og Gói bjargar málunum still2-sveppiAlgjör Sveppi og Gói bjargar málunum situr nú í fjórða sæti aðsóknarlistans eftir fjórðu sýningarhelgi. Alls sáu myndina 4.571 manns í liðinni viku, þar af 1.995 um helgina. Myndin hefur því fengið alls 30.386 gesti.

Afinn er nú í ellefta sæti eftir níundu sýningarhelgi. Alls hafa 14.764 séð myndina frá upphafi, þar af 150 síðastliðna viku.

Grafir og bein er í 14. sæti eftir fjórðu sýningarhelgi með alls 146 gesti í vikunni, þar af 27 um helgina. Samtals hafa 3.536 séð myndina frá upphafi.

Borgríki 2 Ólafs de Fleur er nú í 16. sæti eftir sjöttu sýningarhelgi. 254 sáu myndina í nýliðinni viku. Heildaraðsókn frá upphafi nemur 11.000 manns.

AÐSÓKN VIKUNA 17.-23. nóv. 2014:

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
4Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum4.57130.386
6Borgríki 2254 11.000
9Afinn150 14.764
4Grafir og bein146 3.536
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR