Greining | Sveppi 4 mokar inn áhorfendum

algjör Sveppi og Gói bjargar málunum still2-sveppiFjórða Sveppamyndin, Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum, heldur áfram að moka inn áhorfendum. Alls komu 13.462 manns á myndina í liðinni viku, þar af 8.635 um helgina. Myndin hefur því fengið alls 22.897 gesti eftir aðra sýningarhelgi og situr aftur á toppi aðsóknarlistans. Interstellar, sem frumsýnd var um helgina, kemur nokkuð á eftir með 7.468 gesti.

Borgríki 2 Ólafs de Fleur fellur úr fimmta sæti aðsóknarlistans í það sjöunda eftir fjórðu sýningarhelgi. 421 sá myndina um helgina en alls 1.533 yfir vikuna. Heildaraðsókn frá upphafi nemur 10.392 manns.

Grafir og bein fellur úr þriðja sæti í það níunda eftir aðra sýningarhelgi með alls 2.114 gesti í vikunni, þar af 364 um helgina. Samtals hafa 3.188 séð myndina frá upphafi.

Afinn er nú í tíunda sæti eftir sjöundu sýningarhelgi. Alls hafa 14.405 séð myndina frá upphafi, þar af 649 síðastliðna viku.

AÐSÓKN VIKUNA 3.-9. nóv. 2014:

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
2Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum13.46222.897
2Grafir og bein2.1143.188
4Borgríki 21.533 10.392
7Afinn64914.405
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR