Greining | Á áttunda þúsund hafa séð „Borgríki 2“ eftir aðra sýningarhelgi

Zlatko Krickic í Borgríki 2.
Zlatko Krickic í Borgríki 2.

Borgríki 2 Ólafs de Fleur er nú í þriðja sæti aðsóknarlistans eftir aðra sýningarhelgi. Alls sáu 1.375 myndina um helgina em alls 4.739 yfir vikuna. Heildaraðsókn frá upphafi nemur því 7.476 manns.

Afinn er nú í fimmta sæti eftir fimmtu sýningarhelgi. Alls hafa 13.178 séð myndina frá upphafi, þar af 1.776 síðastliðna viku.

París norðursins er nú í 18. sæti aðsóknarlistans eftir átta vikur í sýningum. Alls hafa 11.405 gestir séð myndina hingað til, en þar af komu 234 í vikunni.

Vonarstræti er áfram í 22. sæti á lista SMÁÍS eftir 24 vikur í sýningum. Samtals hefur myndin fengið 47.982 gesti frá því sýningar hófust í maí.

AÐSÓKN VIKUNA 20.-26. okt. 2014:

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
2Borgríki 24.739 7.476
5Afinn1.77613.178
8París norðursins23411.405
24Vonarstræti8347.982
(Heimild: SMÁÍS)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR