Greining | „Borgríki 2“ á toppnum eftir frumsýningarhelgina

Zlatko Krickic í Borgríki 2.
Zlatko Krickic í Borgríki 2.

Borgríki 2 Ólafs de Fleur átti ágæta frumsýningarhelgi, en alls sáu myndina 4.224 manns frumsýningarhelgina ef forsýningar eru meðtaldar. Myndin situr í efsta sæti aðsóknarlista SMÁÍS. Þetta er þriðja stærsta opnun íslenskrar kvikmyndar á árinu, enVonarstræti og Lífsleikni Gillz áttu stærri frumsýningarhelgar.

Þetta er og vel yfir opnunarhelgi Borgríkis í október 2011 en þá helgi sáu 3.220 gestir myndina. Alls sáu 16.424 fyrstu Borgríkismyndina í bíó.

Afinn er nú í fjórða sæti eftir fjórðu sýningarhelgi. Alls hafa 11.836 manns séð myndina frá upphafi, þar af alls 2.116 síðastliðna viku.

París norðursins er nú í 15. sæti aðsóknarlistans eftir sjö vikur í sýningum. Alls hafa 11.252 gestir séð myndina hingað til, en þar af komu alls 429 í vikunni.

Vonarstræti er áfram í 22. sæti á lista SMÁÍS eftir 23 vikur í sýningum. Alls sáu myndina 192 manns s.l. viku. Samtals hefur myndin fengið 47.928 gesti frá því sýningar hófust í maí.

AÐSÓKN VIKUNA 13.-19. okt. 2014:

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
Borgríki 24.224 4.224
4Afinn2.11611.836
7París norðursins429 11.252
23Vonarstræti192 47.928
(Heimild: SMÁÍS)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR