Fréttablaðið um „Afann“: Leiksigur hjá Sigga Sigurjóns

afinn-plakat-cropLilja Katrín Gunnarsdóttir hjá Fréttablaðinu skrifar um Afann eftir Bjarna Hauk Þórssson og segir í umsögn sinni:

Handritið að Afanum er byggt á samnefndum einleik sem settur var upp í Borgarleikhúsinu. Myndin fjallar um Guðjón, sem Sigurður Sigurjónsson leikur. Hann er orðinn gamall. Kominn á eftirlaunaaldur. Farinn að finna fyrir alls konar eymslum sem áður voru óþekkt. Er orðinn helst til lengi að kasta af sér þvagi. Aldurinn fer ekkert sérstaklega vel í okkar mann og eins og hann segir á einum stað í myndinni hefur hann aldrei verið jafn týndur á ævinni.

Hér er ekki á ferð stórkostlega flókin mynd með óvæntum u-beygjum. Sagan er í raun einföld. Það er byrjun, miðja og endir. Það eru skarpir árekstrar og úrlausn vandamála. En þessari einföldu sögu eru gerð góð skil. Myndin heldur manni frá upphafi til enda og maður heldur með persónunum, þó sérstaklega Sigga Sigurjóns. Hann er svo yndislega sympatískur í ellikreppunni sinni að maður hlær og grætur með honum og vegna einlægrar túlkunar leikarans nær maður að upplifa allar hans hæðir og lægðir með honum. Þetta er leiksigur fyrir

Sigga. Ein hans besta frammista á ferlinum. Hann missir aldrei dampinn og tengist áhorfendum órjúfanlegum böndum.

Aðrir leikarar standa sig með prýði. Sigrún Edda Björnsdóttir, sem leikur konu Sigga, kemst vel frá sínu og lýsir upp hvíta tjaldið með sínum töfrum, líkt og hún hefur lýst upp leiksviðið í fjöldamörg ár. Svo eru óvæntir senuþjófar eins og Steinn Ármann og Guðlaug Elísabet – fullu hjónin úti á Kanarí sem elska ekkert meira en að glamra gamla dægurlagaslagara á gítar langt fram á nótt. Og Jóhann Sigurðarson á feikigóða og sannfærandi innkomu.

Handritið er ágætlega skrifað og oft tekst vel til með brandara. Ekki alltaf, en oft. Leikstjórinn kemst líka vel frá sínu verki og dettur sem betur fer ekki oft í þá gryfju að draga atriði á langinn svo þau missi marks.

Afinn er kærkomin tilbreyting frá þeim íslensku myndum sem hafa verið gerðar síðustu ár. Myndin er hreinræktað skemmtiefni sem öll fjölskyldan ætti að geta hlegið að – og kannast við þær aðstæður sem afinn sjálfur lendir í.

afinn-fbl umsögn

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR