Klapptré eins árs

klapptré-eins-ársKlapptré er eins árs í dag, miðillinn fór í loftið þann 16. september 2013. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka þér kæri lesandi fyrir frábærar móttökur, sem hafa verið langt umfram það sem ég gerði ráð fyrir í upphafi.

Alls hafa birst rúmlega 700 fréttir og pistlar á árinu.

Lestrartölur líta svona út eftir fyrsta árið (meðaltal mánaðar í sviga):

  • Einstakir gestir: 44,366 (3,697 á mánuði)
  • Heimsóknir: 80,299 (6,692 á mánuði)
  • Flettingar: 135,665 (11,305 á mánuði)

Til samanburðar má nefna að þegar Land & synir, vefur kvikmyndagerðarmanna var í loftinu (2003-2011) var meðalaðsókn 953 einstakir gestir á mánuði. Aðsókn á Klapptré er því um fjórfalt meiri.

Hér má láta sér líka við Facebook síðuna okkar (muna að stilla á “Get notifications / Fá tilkynningar) og við erum líka á Twitter.

Ásgrímur Sverrisson
Ásgrímur Sverrisson
Ásgrímur Sverrisson er kvikmyndagerðarmaður og ritstjóri Klapptrés.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR