Greining | „Vonarstræti“ komin í hóp mest sóttu myndanna frá ’95, „Mýrin“ enn efst

Theódór Júlíusson í Mýrinni eftir Baltasar Kormák.
Theódór Júlíusson í Mýrinni eftir Baltasar Kormák.

Klapptré birtir nú í fyrsta sinn uppfærðan aðsóknarlista SMÁÍS yfir tíu mest sóttu kvikmyndirnar frá 1995 (þegar mælingar SMÁÍS hófust) til dagsins í dag. Listi með öllum íslenskum kvikmyndum þessa tímabils, heildaraðsókn, heildartekjur og aðsókn/tekjur á opnunarhelgi er á lokametrunum í vinnslu og mun birtast innan tíðar. Athugið að röð listans er eftir heildaraðsókn (ekki heildartekjum).

Myndir Baltasars eru áberandi á listanum, en hann hefur leikstýrt fjórum þeirra og að auki leikið í tveimur öðrum. Friðrik Þór á tvær, Ragnar Bragason, Gunnar B. Guðmundsson, Óskar Þór Axelsson og Baldvin Z eina hver.

Heiti myndarFrumsýndHeildaraðsókn
MýrinOktóber 200684.428
Englar alheimsinsDesember 199982.264
DjöflaeyjanNóvember 199674.754
BjarnfreðarsonDesember 200966.876
Svartur á leikMars 201262.783
HafiðSeptember 200257.626
BrúðguminnJanúar 200855.269
DjúpiðSeptember 201250.157
AstrópíaÁgúst 200746.285
VonarstrætiMaí 201439.244
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR