24% veltuaukning í bransanum frá fyrra ári

velta í bransanum jan feb 2008-2014SÍK hefur sent frá sér tölur um veltu í kvikmyndagreininni í janúar og febrúar á árunum 2008-2014. Byggt er á gögnum Hagstofunnar.

Af grafinu sem sjá má hér að ofan sést að veltuaukning frá sama tímabili síðasta árs nemur um 24% í framleiðslu á kvikmynduðu efni á Íslandi.

Þá má einnig benda á að um 260% veltuaukning hefur orðið á þessu tímabili frá 2008.

Hafa skal í huga að þetta eru aðeins tölur fyrir janúar og febrúarmánuði viðkomandi ára, en miklar sveiflur geta orðið í veltu milli mánaða. Hinsvegar er óhætt að tala um að kvikmyndagreinin sem slík sé almennt í stórsókn, en þó skal einnig haft í huga að veltuaukningin stafar að verulegu leyti af auknu umfangi erlendra verkefna.

Heildarveltu síðasta árs má sjá hér.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR