Öllum sagt upp á Bravó og Miklagarði; nýs hlutafjár leitað

Andlit Miklagarðs: Frá vinstri; Edda Hermannsdóttir, Guðfinnur Sigurvinsson, Vignir Freyr Andersen, Ólafur Örn Ólafsson, Þórunn Högna og Þórunn Lárusdóttir.
Andlit Miklagarðs: Frá vinstri; Edda Hermannsdóttir, Guðfinnur Sigurvinsson, Vignir Freyr Andersen, Ólafur Örn Ólafsson, Þórunn Högna og Þórunn Lárusdóttir.

Öllu starfsfólki Konunglega kvikmyndafélagsins, sem rekur sjónvarpsstöðvarnar Bravó og Miklagarð, hefur verið sagt upp. Leitað er nýju hlutafé til að styrkja rekstur félagsins.

Þetta kemur fram í eftirfarandi fréttatilkynningu frá Konunglega kvikmyndafélaginu:

Konunglega kvikmyndafélagið segir upp 11 fastráðnum starfsmönnum, þar á meðal fjármálastjóra og framkvæmdastjóra félagsins, sem og verktökum sem sinnt hafa störfum fyrir félagið. Vonir standa til að með öflun nýs hlutafjár verði hægt að ráða þá alla aftur. Gert er ráð fyrir óbreyttri dagskrá áfram og áhorfendur munu ekki finna fyrir þessum aðgerðum að svo komnu máli.

Endurskipulagning nauðsynleg vegna mikils kostnaðar 
Konunglega kvikmyndafélagið hefur unnið að undirbúningi Bravó og Miklagarðs í tæpt ár og fóru miðlarnir í loftið í byrjun marsmánaðar. Kostnaður við uppsetningu reyndist meiri en áætlað var auk þess sem frestun á opnun stöðvanna setti strik í reikninginn. Miklagarði og Bravó hefur verið vel tekið af áhorfendum og auglýsendum og eru mörg jákvæð teikn í rekstrinum. Vefur Bravó er þegar orðinn einn mest sótti vefur landsins. Nýtt app verður kynnt til sögunnar á næstu dögum og verður mikilvæg dreifileið fyrir efni þessara stöðva. Áætlanir stjórnenda gera ráð fyrir frekari sókn í kjölfarið á væntanlegri innkomu nýs hlutafjár.

Sigmar Vilhjálmsson, stofnandi Konunglega kvikmyndafélagsins: 
„Sem kunnugt er þá er stofnun fjölmiðla afar kostnaðarsamt verkefni. Stofnkostnaðurinn reyndist töluvert hærri en við gerðum ráð fyrir. Við reiknuðum með því að fara í hlutafjáraukningu á þessu ári en áttum ekki von á því að þurfa að fara í hana svo snemma. Hins vegar erum við full bjartsýni um að það takist að fá nýja hluthafa að félaginu. Flestir núverandi hluthafar hafa lýst yfir áhuga á að taka þátt í komandi hlutafjáraukningu en það er ljóst að við erum með henni að leitast við að tryggja fjárhagslegan grunn félagsins til framtíðar.

Það eru mjög spennandi tímar framundan á fjölmiðlamarkaði og við höfum fullan hug á því að verða virkir þátttakendur í þeim breytingum. Við höfum fjárfest í öllum þeim tæknibúnaði sem þarf til að reka nútíma sjónvarpsstöðvar sem ná til áhorfenda óháð áhorfstækjum eða tíma. Framtíðarsýn okkar á þessa miðla er mjög skýr og við trúum því að þeir eigi fullt erindi. Báðar stöðvarnar eru afar tæknilega fullkomnar og hefur útsending þeirra gengið snurðulaust frá því að þær fóru í loftið.

Uppsagnir eru alltaf sársaukafullar en þær eru því miður nauðsynlegar til að liðka fyrir endurskipulagningu á rekstri félagsins, þeir hafi unnið ötult og óeigingjarnt starf undanfarna mánuð, fyrir það erum við gríðarlega þakklátir. Með öflun nýs hlutafjár eigum við þess vonandi kost að ráða allt þetta hæfileikaríka fólk aftur. Við erum bjartsýnir á framhaldið.“

Sjá nánar hér: Vísir – Öllum á Bravó og Miklagarði sagt upp.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR