Svartir sunnudagar klára veturinn með „Brazil“ og plakatasýningu

Jonathan Pryce í Brazil.
Jonathan Pryce í Brazil.

Vetrardagskrá Svarta sunnudaga lýkur þann 27. apríl með sýningu á Brazil eftir Terry Gilliam. Af þessu tilefni verður opnuð vegleg plakatasýning á sunnudagskvöldið kl. 19.30 þar sem líta má afrakstur þeirra listamanna sem gerðu plaköt sérstaklega fyrir sýningar Svartra Sunnudaga í vetur. Hægt verður að kaupa plaköt á opnun sýningarinnar og áfram.

Ýmsir listamenn lögðu hönd á plóginn á liðnum vetri, þar á meðal Sigtryggur Berg, Helgi Þórsson, Sunna Rún Pétursdóttir, Ingi Jensson, Sirrý Margrét Lárusdóttir, Harpa Rún Ólafsdóttir, Ómar Hauksson, Inga María, Þórir Celin, Sjón, Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams, Davíð Örn Halldórsson, Snorri Ásmundsson, Evana Kisa, Bobby Breiðholt, Víðir Mýrmann, Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson, Hrefna Hörn, Ragnar Fjalar Lárusson, Ragnar Hansson, Friðrik Svanur Sigurðarsson, Halldór Baldursson, Þorri Hringsson, Lilja Hlín Pétursdóttir og Eysteinn Þórðarsson. Hér er um að ræða sölusýningu og er hvert veggspjald sérprentað fyrir viðskiptavininn.

Sýningin fer fram í anddyri Bíó Paradísar. Allir eru velkomnir á opnunina, en sýningin mun standa fram eftir vori.

Kl. 20 hefst svo sýning á lokamynd vetrarins, Brazil (1985). Myndin fjallar um Sam Lowry, sem er langhrjáður tækniveldissinni sem lifir í framtíðarsamfélagi sem er að hruni komið. Hann dreymir um að flýja tæknina og skrifræðið, í annan heim þar sem hann gæti eytt eilífðinni með draumakonunni. Þegar Sam reynir að koma í veg fyrir handtöku sem hann telur rangláta, fellur hann fyrir konu drauma sinna Jill Layton. En þá hafa viðjar skrifræðisbáknsins gert hann ábyrgan fyrir röð hryðjuverkasprenginga sem flækir stöðuna enn frekar og leggur líf þeirra skötuhjúa í hættu.

Sjá nánar hér: Uppskeruhátíð Svartra Sunnudaga – Plakatasýning.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR