Plaköt „Vonarstrætis“ afhjúpuð

Þrjú plaköt kvikmyndarinnar Vonarstræti, sem væntanleg er 16. maí, hafa litið dagsins ljós. Hvert þeirra prýðir ein þriggja aðalpersóna myndarinnar.

Vonarstræti fjallar um óvægna fortíðardrauga, þöggun, sársauka og syndaaflausn. Áhorfendur fá að fylgjast með þremur ólíkum persónum fóta sig í íslensku samfélagi á árunum rétt fyrir hrun og því hvernig örlög þeirra fléttast saman á áhrifaríkan máta.

Móri (Þorsteinn Bachmann) er rithöfundur og bóhem sem finnur hvergi frið fyrir óbærilegum minningum annars staðar en á botni flöskunnar. Eik (Hera Hilmarsdóttir) er leikskólakennari sem neyðist til að grípa til örþrifaráða til að framfleyta sér og dóttur sinni. Sölvi (Þorvaldur Davíð) er fyrrum fótboltastjarna sem verður að hætta að spila vegna meiðsla og er nú á hraðri uppleið í vafasömum banka.

Gömul og ný leyndarmál hrinda aðalpersónunum hverri í átt að annarri í hörkuspennandi og átakanlegri atburðarás sem lætur engan ósnortinn.

Kvikmyndin er innblásin af sönnum atburðum og áhorfendur gætu því kannast við tilteknar aðstæður, persónur eða atburði  úr raunveruleikanum, enda ekki langt um liðið síðan útrásin stóð sem hæst.

Handritið skrifuðu þeir Birgir Örn Steinarsson og Baldvin Z, sem einnig leikstýrði myndinni. Sena dreifir.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR