Film in Iceland tilnefnt til verðlauna í Bandaríkjunum

 

Einar Tómasson stýrir Film in Iceland.
Einar Tómasson stýrir Film in Iceland.

The Location Manager Guild of America tilnefndi Film in Iceland til verðlauna nú á dögunum, fyrir að þjónusta kvikmyndina The Secret Life of Walter Mitty. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi samtök standa fyrir verðlaunaveitingum.

„Þetta er vottur um að það hafi tekist vel hjá okkur undanfarin ár að laða erlend kvikmyndaverkefni til landsins og að það er ánægja með þau verkefni sem við höfum stýrt til landsins,“ segir Einar Tómasson í samtali við Vísi, en hann hefur stýrt Film in Iceland síðastliðinn áratug.

Film in Iceland er verkefni sem rekið er af iðnaðarráðuneytinu innan Íslandsstofu og snýst um að fá erlendar kvikmyndir til landsins.

„Verkefnin sem hafa komið til landsins hafa gengið mjög vel og þess vegna koma erlendir framleiðendur aftur og aftur. Framleiðslufyrirtækið sem skaut Walter Mitty skaut árið á undan kvikmyndina Prometheus hér á landi. Þeim leið nógu og vel til að koma aftur sem er náttúrulega frábært,“ heldur hann áfram, en Einar leggur mikið upp úr því að þeir kvikmyndaframleiðendur sem taki upp hér á landi kynni Ísland samhliða kvikmyndinni.

„Það hefur gengið vel og okkur hefur tekist að fylgja eftir landkynningunni, eins og til dæmis með Walter Mitty þar sem Ísland var hluti af auglýsingaherferðinni fyrir myndina. Ben Stiller ræddi Ísland í spjallþáttum og viðtölum vestan hafs og þar fram eftir götunum,“ útskýrir Einar.

Sjá nánar hér: Vísir – Íslendingar héldu vel utan um Ben Stiller.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR